Síða 1 af 1
Bead lock kitt frá USA
Posted: 25.okt 2016, 06:21
frá juddi
Er eithvað af þessu dóti nothæft í þessum úrhleipingum sem við stundum hérna uppá hjara veraldar
Re: Bead lock kitt frá USA
Posted: 25.okt 2016, 19:36
frá Startarinn
Þessi kit sem ég hef skoðað hefur öll vantað miðjustýringuna fyrir dekkið, sem á líka að hindra að gjörðin bogni inná við þegar hún er hert að dekkinu
Re: Bead lock kitt frá USA
Posted: 25.okt 2016, 20:36
frá Icerover
Ég keypti kit af summit frá Aero sem virkaði mjög vel. Ég setti nýja bolta og fjölgaði þeim um helming (þurfti að bora innri hringinn)
Verst að þetta er ekki framleitt nema í 13" og 15" stærðum
Mbk, Ásgeir
Re: Bead lock kitt frá USA
Posted: 25.okt 2016, 21:56
frá Goði
Eg keypti hjá Chassis unlimited kit fyrir 16" fyrir þremur árum og það hefur alveg verið til friðs.
Re: Bead lock kitt frá USA
Posted: 26.okt 2016, 06:22
frá juddi
Takk fyrir þetta er að leita að 16" og 17"
Re: Bead lock kitt frá USA
Posted: 26.okt 2016, 16:38
frá MixMaster2000
Ég keypti svona hringi fyrir nokkrum árum
http://atozfabrication.com/images/product/apWR1O3.jpegOg þeir virka mjög vel.
Lögunin á miðjunni á dekkjunum gerir það að verkum að, svo lengi sem hringirnir eru herti allveg jafnt og í nógu mörgum skerfum, þá stýrir dekkið sér allveg í miðjuna.
Og svo tekur maður bara 16 X 3 flatjárn og valsar (nóg að leggja það utan um eitthvað hringlótt með höndunum) það svo það passi innan við boltana í hringjunum og þá ertu kominn með stoppara, og getur hert boltana án þess eð hringirnir bogni inn.
kv Heiðar Þorri