Síða 1 af 1

Föst olíusía

Posted: 06.feb 2011, 22:30
frá TF3HTH
Jæja, kunna menn einhver húsráð til að losa pikkfasta olíusíu? Keypti mér spes verkfæri í þetta í N1 og mér tókst að eyðileggja það slík voru átökin. Keypti reyndar ódýrustu útgáfu og kannski fékk ég peninganna virði :)

Allavega.... einhver ráð?

-haffi

Re: Föst olíusía

Posted: 06.feb 2011, 23:18
frá KÁRIMAGG
Ég hef þuft að reka stórt skrúfjárn í gegn um síur til að losa þær og allt út í það að tæta þær sundur til að komast að gengjunum til að meitla af stað það er allt til í þessu en ég á til mjög góða og sterka töng fyrir þetta getur fengið hana lánaða. Kári 8987428

Re: Föst olíusía

Posted: 07.feb 2011, 06:46
frá Sævar Örn
Hreinsa olíuna vel burtu og nota leðurbelti, vefja svo 1/2" framlengingu gegn um lausa endann og taka á því... ;)

Re: Föst olíusía

Posted: 07.feb 2011, 11:58
frá Haukur litli
Ég hef eins og Kári rekið skrúfjárn í gegn, reyndar notaði ég tvö. Ég á líka olíu "töng" sem er keðja með handfangi. Þegar maður nær að koma henni rétt fyrir þá er hún fljót að grafa sig inn í síuna og ná henni af stað.

Re: Föst olíusía

Posted: 07.feb 2011, 23:54
frá TF3HTH
Sælir,

Með stóru skrúfjárni og rörbút sem skaft hafðist þetta úr. Ég þakka samt boð um lán á verkfæri.

Lærdómurinn af þessu er tvennt:

Smyrja þéttihringinn áður en sían er sett á og ekki herða of mikið. Á nýju síunni stóð 2/3 úr hring eftir að þéttingin snertir sætið.

Losa upp á síunum áður en vélin er sett í :)

-haffi

Re: Föst olíusía

Posted: 10.feb 2011, 07:47
frá arntor
ég hef alltaf hert olíusíur bara téttingsfast med hendinni. aldrei lent í neinu leka veseni eda basli. svo get ég alltaf losad aftur bara med hendinni.

Re: Föst olíusía

Posted: 10.feb 2011, 08:30
frá HaffiTopp
..

Re: Föst olíusía

Posted: 13.feb 2011, 23:17
frá TF3HTH
Þetta var á Nissan 4.2 dísel, hún er með 2 smursíur. Önnur var föst, hin var mjög föst :)

-haffi