Læsinga möguleikar
Posted: 20.aug 2016, 04:33
frá Lsk
Einhver sem getur frætt mig um hvaða möguleikar eru í boði fyrir Nissan Navara 1999 módel í driflæsingum.
Re: Læsinga möguleikar
Posted: 21.aug 2016, 18:37
frá olei
Hvaða afturhásing er undir þessum bíl? Grunar að það gæti verið sama afturdrif í þessu og Terrano frá sömu árum, sem er þá HB233 með 30 rílu öxlum. Sé svo þá passar t.d diskalás úr Terrano í og það er hægt að fá loftlás í þessar hásingar.
ARB sem framleiðir loftlásana er með heilmikla töflu um flesta bíla, þú getur litið á Nissan Navara hér.
http://www.arb.com.au/assets/air-locker ... _chart.pdf