Síða 1 af 1

Gerði við O2 skynjara

Posted: 22.mar 2016, 18:31
frá emmibe
Smá í viðgerðarbankann.

Það kom upp check engina ljós hjá mér og error codi 0141 O2 Sensor Heater Circuit Malfunction (Bank 1, Sensor 2) http://www.obd-codes.com/p0141 en þetta er 4 víra O2 skynjari fyrir aftan hvarfann en sensor 1 er upp við púsgrein, langaði ómögulega að kaupa mér nýjan svo ég opnaði hann og þar var annar hvíti vírinn fyrir hitarann bara laus. Festi hann aftur með (Magnet Wire) sem leiðir ekki þar sem það virðist vera postilín eða svipað í elementinu og veit ekkert hvernig á að festa vír við það. Allaveganna virkar kvikindið eftir þessa aðgerð, en ég held að vírinn hafi dregist út vegna klaka og snjós því skynjarinn er einstaklega illa staðsettur, langaði að benda á þetta því varla eru svona skyjarar gefins.
Hefði kannski getað opnað hann snyrtilegar en lokaði honum svo með blikki.
20160322_182007.jpg
o2 skynjari
20160322_182007.jpg (1.79 MiB) Viewed 2281 time

Kv. Elmar

Re: Gerði við O2 skynjara

Posted: 23.mar 2016, 08:24
frá jongud
O2 skynjarar í Suzuki eru á þetta 22-56$ á Ebay...

Re: Gerði við O2 skynjara

Posted: 23.mar 2016, 09:19
frá emmibe
Þá get ég notað 2.775,96-7.066,08 í bensín eða td rúðuþurrkur er það ekki...

Re: Gerði við O2 skynjara

Posted: 24.mar 2016, 11:56
frá Sævar Örn
Góður, þessu hefði ég aldrei nennt að spá í, en þarna ertu kominn með eina bónuskörfu að launum fyrir smá bras

Re: Gerði við O2 skynjara

Posted: 24.mar 2016, 18:47
frá grimur
Spurning hvad mikid tapast í bensín eydslu tegar hann fer ad skila vitlausum gildum......

Re: Gerði við O2 skynjara

Posted: 24.mar 2016, 23:20
frá emmibe
Það var 2 lítra munur meðan hann var kaldur sagði tölvan.
Mér skilst nú að hitarinn sé til að fá rétt gildi meðan vélin og hvarfinn er að hitna. Voltin voru rétt (0.2v - 1.0v) og ég gat losnað við check ljósið mjög fljótlega það kom svo aftur ef ég drap á og setti í gang.
Sævar mér finnst bara gaman að vita hvernig þetta dót er að vinna og virka :-)

Re: Gerði við O2 skynjara

Posted: 25.mar 2016, 09:35
frá ellisnorra
Veriði jákvæðir, sumir vilja bara laga hlutina þegar það er hægt og er það bara frábært. Svo var hann velviljaður og vildi deila reynslu sinni, sem jeppaspjallið er akkúrat um :)
Flott hjá þér nafni! :)

Re: Gerði við O2 skynjara

Posted: 25.mar 2016, 16:01
frá jongud
elliofur wrote:Veriði jákvæðir, sumir vilja bara laga hlutina þegar það er hægt og er það bara frábært. Svo var hann velviljaður og vildi deila reynslu sinni, sem jeppaspjallið er akkúrat um :)
Flott hjá þér nafni! :)


Sammála þessu, bara jákvætt.