Síða 1 af 1

14 bollta full fljótandi vs dana60/70

Posted: 10.mar 2016, 23:55
frá íbbi
mér býðst full fljótandi 14 bollti á ansi góðu verði, mun betra en þær dana 60/70 sem mér hafa boðist,

ég er staðráðinn í að nota D60 að framan, en hef verið opnari með afturhásingu,

hvernig er með hlutföll í 14 bolltan, eru þau jafn auðfengfin og í d60/70?

hvernig er með breidd á GM rörinu VS d60 undan ford? er sama 8 gata deiling á GM og ford?

mbk!

íbbi

Re: 14 bollta full fljótandi vs dana60/70

Posted: 11.mar 2016, 00:55
frá spámaður
Val um hlutföll í 14 boltan eru ekki síðri en í d60 allavega það sem ég hef séð og lesið mér til um í ameríku...þeir kalla 14 boltan Lordinn:)
veit ekki með breiddina í fullfloat 14 boltan..hvort að hann sé til í morgum breiddum...en kannski er semifloat 14 boltinn með fleiri breiddir og d 60.

Re: 14 bollta full fljótandi vs dana60/70

Posted: 11.mar 2016, 01:05
frá íbbi
það er nefnilega það sem maður hefur heyrt með 14 bollta, að þær séu eins sterkar og þær verða,

en líka að hún sé klettþung, sem er smá áhyggjuefni þar sem ég er með 1500 bíl,

Re: 14 bollta full fljótandi vs dana60/70

Posted: 11.mar 2016, 08:51
frá jongud
14 bolta hásingin léttist um helling ef það er breytt yfir í diskabremsur. Það er líka mun handhægara að stilla inn hlutföll í 14-bolta en dana 60 og 70.

Re: 14 bollta full fljótandi vs dana60/70

Posted: 11.mar 2016, 15:12
frá íbbi
ég virðist hafa misst af henni því miður,

hann bauð mér aðra sem hann sagði eins, en á myndunum veitti ég því athygli að öxlarnir voru ekki boltaðir í nafstútinn eins og á full fljótandi, en hún er samt með 8 gata deiling, er þetta þá ekki frekar 12 bollti? eða minni 14 bollti, ég á eina slíka fyrir, en 6 gata

Re: 14 bollta full fljótandi vs dana60/70

Posted: 11.mar 2016, 16:32
frá spámaður
gæti verið minni 14 bolti(semifloat) ef þú getur séð hvað eru margir boltar sem halda lokinu á húsinu þá eiga þeir að vera 14..held að það sé 9 tommu drif í semifloat 14boltanum en 9.5 í fullfloat.

Re: 14 bollta full fljótandi vs dana60/70

Posted: 11.mar 2016, 18:29
frá íbbi
semi floaterinn er 9.5, og full floaterinn er 10.5 :)

það er nú akkurat gallinn, þessi hásing er utanbæjar, s.k myndum þá er hún undan eldri chevrolet, með 8 gata delingu