Bremsudæla með handbremsuarm

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
BjarniGylfa
Innlegg: 19
Skráður: 26.sep 2015, 14:41
Fullt nafn: Bjarni Þór Gylfason

Bremsudæla með handbremsuarm

Postfrá BjarniGylfa » 03.mar 2016, 20:19

Er með gamlan Pajero sem er með skálahandbremsu, þar sem hlífarnar sem halda klossunum eru nánast orðnar að ösku og það styttist í skoðun þá var ég að velta því fyrir mér að henda því út og finna mér einhverjar dælur sem eru með handbremsuarm.

Hafið þið einhverjar hugmyndir um dælur sem gott væri að nota í þetta?

kv, Bjarni



User avatar

Lindemann
Innlegg: 147
Skráður: 02.feb 2010, 17:24
Fullt nafn: Jakob Bergvin Bjarnason
Bíltegund: Cherokee ZJ

Re: Bremsudæla með handbremsuarm

Postfrá Lindemann » 03.mar 2016, 23:19

ég á dælur úr subaru 1800 sem þú getur fengið fyrir lítið ef þú vilt....en það þarf að liðka þær.

Það eru ekki margar dælur sem eru nógu stórar fyrir svona jeppa til að komast yfir diskinn, ég var búinn að skoða úr nokkrum evrópskum og japönskum fólksbílum og fann ekkert sem gekk fyrir mig annað en subaru dælurnar en ákvað svo að fara aðra leið.
Suzuki Vitara '97 32"
Jeep Grand Cherokee '95 38"

User avatar

jongud
Innlegg: 2625
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Bremsudæla með handbremsuarm

Postfrá jongud » 04.mar 2016, 08:19

Subaru dælurnar hafa reynst vel í þetta, þær eru enn til á Ebay, það er bara að leita að
subaru front brake caliper 1983 (eða 1984)
Ef þú villt stærri dælur þá er hægt að fara í amerískar undan Cadillac eða jafnvel Ford Super-duty og Dodge Ram

User avatar

muggur
Innlegg: 354
Skráður: 12.okt 2011, 15:16
Fullt nafn: Guðmundur Þórðarson

Re: Bremsudæla með handbremsuarm

Postfrá muggur » 04.mar 2016, 12:03

Sæll
Er ekki einfaldara að laga bara orginal dótið? Ef þér vantar stykki nr 16 á myndinni þá er það til a 60 pund stykkið frá Bretlandi (http://www.milneroffroad.com/mitsubishi-uk-europe/shogun/v43s-3-0petrol-121990-22000-lwb/v43s-brakes/v43s-brake-backing-plate-rear-rh). Auðvitað er það smá peningur en sparar tíma við bras.
kv. Muggur

PajeroRearBrakes.JPG
PajeroRearBrakes.JPG (75.08 KiB) Viewed 2543 times
----------------------------------------------
Guðm. Þ.
Pajero 1998 V6 3000 24V

User avatar

jeepcj7
Innlegg: 1697
Skráður: 01.feb 2010, 08:46
Fullt nafn: Hrólfur Árni Borgarsson
Bíltegund: F-250 Powerstroke
Staðsetning: Akranes

Re: Bremsudæla með handbremsuarm

Postfrá jeepcj7 » 04.mar 2016, 12:47

Handbremsan í borða í superduty og að öllum líkindum mun skárri búnaður en diska dótið.
Ég myndi lappa upp á orginal stöffið frekar.
Heilagur Henry rúlar öllu.


Höfundur þráðar
BjarniGylfa
Innlegg: 19
Skráður: 26.sep 2015, 14:41
Fullt nafn: Bjarni Þór Gylfason

Re: Bremsudæla með handbremsuarm

Postfrá BjarniGylfa » 05.mar 2016, 20:03

Sælir,

takk fyrir svörin. Það er kannski réttast að halda sig bara við þetta original fyrst maður er að standa í þessu. Fann þetta á ali áðan og sendi fyrirspurn :-)

kv, Bjarni


atlifr
Innlegg: 180
Skráður: 01.feb 2010, 09:13
Fullt nafn: Atli F Unnarsson

Re: Bremsudæla með handbremsuarm

Postfrá atlifr » 08.mar 2016, 10:56

Sæll

Ég er með Chevrolet Cruze 2012. Þeir eru með handbremsuna í dælunni. Frekar einfaldur búnaður sem herðir einnig út í. Eina leiðinlega við þær er að það þarf að skrúfa dæluna inn aftur þegar maður skiptir um klossa. Þær gætu komist utan um diskinn, það eru nokkuð víðir diskar á þeim bílum.
Gætir prufað að heyra í þeim í Benna


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 38 gestir