Síða 1 af 1
kia rafmagnsvesen
Posted: 31.jan 2011, 19:07
frá Þorri
Hefur einhver hérna þekkingu á því hvernig á aftengja orginal þjófavörn í kia sportage '96?
Bíllinn og fjarstýringin hættu að vera vinir og þá hagar hann sér þannig að hann tekur við sér en drepur á sér strax aftur sem segir að þjófavörnin sé á.
Kv. Þorri.
Re: kia rafmagnsvesen
Posted: 14.feb 2011, 14:23
frá jeepster
Er með sama vandamál, aftengi núna með höfuðrofa þegar bílnum er lagt, þá fer hann í gang næst, en eitt verkstæði stakk upp á að nóg væri að fá nýtt háspennukefli ? Önnur hugmynd sem kom upp er að etv. er hægt að setja fjarstart (Nesradíó) til að losna við vandamálið ?
Re: kia rafmagnsvesen
Posted: 14.feb 2011, 22:35
frá Þorri
settir þú þá höfuð rofa við rafgeminn? Þurftiru ekki að setja inn einhvern kóða til að ná honum í gang?
Re: kia rafmagnsvesen
Posted: 15.feb 2011, 10:42
frá jeepster
Já ég setti höfuðrofa á rafgeyminn, er fyrir neðan mælaborð. Ef fjarstýringin er dottin alveg út, þá virkuðu þessar leiðbeiningar hjá mér (svipað fyrir þessar Kia árgerðir):
http://wiki.answers.com/Q/What_are_the_ ... A_Sportage
Re: kia rafmagnsvesen
Posted: 15.feb 2011, 12:09
frá Þorri
Takk fyrir þetta. Þetta verður kannað við fyrsta tækifæri.
Kv. Þorri