ég hugsa að það sé auðveldara að fá upp umræður um þetta hérna en í þræðinum um bílinn, þetta er líka aðgengilegra hérna fyrir aðra sem eru í sömu pælingum,
ég hef verið að gæla við hugsunina að smíða 4link undir gamlann silverado, að aftan. í mínu tilfelli er reyndar ætlunin ekki að fara á stór dekk, bara 35" og hafa bílinn á loftpúðum.
hugsunin á bakvið þetta er fyrst og fremst sú að fá skemmtilegri fjöðrun en þá sem er í bílnum fyrir,
það eru nokkur atriði sem ég væri til í að fá smá umræðu um, þar sem ég veit að margir hérna hafa reynt þetta.
eins og t.d hvaða stáli menn mæla með, ég hyggst smíða bæði vasana og stífurnar sjálfur,
ég hef séð útfærslu þar sem stófurnar eru teknar saman í einn endan, en tvo hásingameginn, hver er pælingin á bakvið það?
ég hafði séð fyrir mér að hentugast væri að smíða sæti fyrir loftpúðana undir grindina beint ofan við rörið, þetta hef ég séð áður, en eftir að ég skoðaði bílinn hef ég reyndar verið efins um að ég fái púða sem komast þarna á milli,
dempararnir í bílnum original vísa fram/aftur, eru vel innan við grindina og annar vísar fram í átt að húsinu og hinn er festur ekki langt frá afturstuðaranum, eru menn ekki að keppast við að hafa þá eins utarlega og hægt er?
endilega deilið með mér allri smíða visku sem þið búið yfir :)
kv, ívar
4link smíði, upplýsingar
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2809
- Skráður: 06.feb 2010, 10:43
- Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
- Bíltegund: Patrol
- Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf
Re: 4link smíði, upllýsingar
íbbi wrote:ég hef séð útfærslu þar sem stófurnar eru teknar saman í einn endan, en tvo hásingameginn, hver er pælingin á bakvið það?
Það eru tvær gerðir af stífum, annarsvegar linkur, 4link eða það sem í raun er 5link og hinsvegar radísarmur eins og margir hásingabílar koma með original að framan (lc70, lc 80, patrol og fleiri). Radísarmurinn er bara smíðaður öðruvísi en virkar samt eins.
íbbi wrote:eins og t.d hvaða stáli menn mæla með, ég hyggst smíða bæði vasana og stífurnar sjálfur,
Bara venjulegt smíðajárn, ég nota yfirleitt 6mm plötur sem ég smíða eftir pappaspjaldi sem ég nota sem mót.
íbbi wrote:ég hafði séð fyrir mér að hentugast væri að smíða sæti fyrir loftpúðana undir grindina beint ofan við rörið, þetta hef ég séð áður, en eftir að ég skoðaði bílinn hef ég reyndar verið efins um að ég fái púða sem komast þarna á milli,
Ég var í sömu "vandræðum" þegar ég var með minn 33-35" hilux fyrir nokkrum árum. Ég setti gormana bara fyrir aftan hásinguna. Mynd af því hér.
íbbi wrote:dempararnir í bílnum original vísa fram/aftur, eru vel innan við grindina og annar vísar fram í átt að húsinu og hinn er festur ekki langt frá afturstuðaranum, eru menn ekki að keppast við að hafa þá eins utarlega og hægt er?
Það er setupið fyrir fjaðrirnar, flestir bílar eru þannig original með fjaðrir. Það er uppá vindinginn á hásingunni, ef dempararnir eru sömu megin þá er alltaf verið að jugga í fjöðrunum öðru megin. Með þessu móti er álaginu dreift meira. Eða það finnst mér allavega rökrétt ástæða fyrir því. Og með að þeir séu nánast undir miðjum bíl, þessir bílar eru mest gerðir fyrir vegaakstur en ekki teyjuæfingar. Sjálfsagt eru díteilaðri ástæður fyrir þessu líka, ef dekk springur og fer í rúst þá slæst það ekki í demparann undir miðjan bíl etc. Einnig andstæðan við eftirfarandi:
Við viljum hafa demparana eins utarlega eins og hægt er til að hækkaðir bílar séu ekki eins svagir, það er stæðsta ástæðan. Auk annara.
Rosa flott að lesa sig betur til hér http://gjjarn.byethost15.com/sjeppar/go ... mindex.htm
http://www.jeppafelgur.is/
Re: 4link smíði, upplýsingar
takk fyrir þetta elli,
já ég var einmitt búinn að lesa þesa síðu fyrir löngu og var að reyna finna hana, brilliant
já ég stórefa reyndar að þessi bíll sjái mikið af teygjuæfingum, málið er að bíllinn sem ég ætla í þetta (græni) er heavy duty með 14 bollta og burðafjöðrum, tómur er hann grjóthastur að aftan og mjög fínn lestaður, eða með kerru, hinn bíllinn hjá mér er akkurat öfugur mjög fínn í akstri, en þegar hann er kominn með t.d annan jeppa á kerru aftan í sig þá er hann rðinn of mjúkur, sá bíll er með "light duty" fjaðrir og 8.6" hásingu (stóra 10bollta)
hugsunin er að smíða eitthvað sem sameinaði bæði, væri hægt að mýkja hann upp í innanbæjarakstri upp á þægindi, og geta svo pumpað hann grjótstífann þegar maður er með bílakerru e-h álíka aftan í honum.
svo jú.. er þetta líka bara hugsað til að prufa að smíða eitthvað svona.

1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra
Re: 4link smíði, upplýsingar
ég held að eina vitið sé eins og þú bendir á, að hafa púðana aftan við hásinguna,
nú er grindin í þessum bíl opin, eða ekki "boxuð" eins og kaninn myndi segja. þyrfti maður ekki að setja plötu á milli yfir stífuvasana, eða smíða vasana þannig að þeir næðu upp í efri kantinn að innanverðu.
nú er grindin í þessum bíl opin, eða ekki "boxuð" eins og kaninn myndi segja. þyrfti maður ekki að setja plötu á milli yfir stífuvasana, eða smíða vasana þannig að þeir næðu upp í efri kantinn að innanverðu.
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra
-
- Innlegg: 2700
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: 4link smíði, upplýsingar
Ég tók eftir því á afmælissýningunni hjá Arctic-Trucks að þeir eru hættir með 5-stífu kerfið að aftan sem þeir hönnuðu á sínum tíma og eru farnir yfir í radíusarma. Ég fékk ekki almennilega upp úr þeim af hverju, enda vildi ég ekki vera að pumpa þá mikið á sjálfri afmælishátíðinni :)
Re: 4link smíði, upplýsingar
eru radíusarmar þar sem stífan er tvöfölld í annan endann og eiinföld í hinn?
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra
-
- Innlegg: 2700
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: 4link smíði, upplýsingar
íbbi wrote:eru radíusarmar þar sem stífan er tvöfölld í annan endann og eiinföld í hinn?
Já, það er ein útgáfan af þeim, gömlu bronco framstífurnar teljast líka vera radíusarmar og líka stóru stífurnar undir Ford super-duty.
Re: 4link smíði, upplýsingar
já ég sá einmitt ford sem var með svona jafnt að framan sem aftan.
ég hef verið að skoða 4link í svona silverado eins og ég hyggst gera þetta við, og sé að menn virðast oftast smíða stífu vasan á hliðina á grindini, væntanlega vegna þess að grindin er opin,
ég hef verið að velta fyrir mér að setja þau undir, en láta stífuvasan ná upp með grindini, eða er nóg að setja þá bara undir grindina og sjóða með hliðunum?
ég hef verið að skoða 4link í svona silverado eins og ég hyggst gera þetta við, og sé að menn virðast oftast smíða stífu vasan á hliðina á grindini, væntanlega vegna þess að grindin er opin,
ég hef verið að velta fyrir mér að setja þau undir, en láta stífuvasan ná upp með grindini, eða er nóg að setja þá bara undir grindina og sjóða með hliðunum?
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra
-
- Innlegg: 2700
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: 4link smíði, upplýsingar
íbbi wrote:já ég sá einmitt ford sem var með svona jafnt að framan sem aftan.
ég hef verið að skoða 4link í svona silverado eins og ég hyggst gera þetta við, og sé að menn virðast oftast smíða stífu vasan á hliðina á grindini, væntanlega vegna þess að grindin er opin,
ég hef verið að velta fyrir mér að setja þau undir, en láta stífuvasan ná upp með grindini, eða er nóg að setja þá bara undir grindina og sjóða með hliðunum?
Það fer líklega eftir því hversu mikið bil er milli grindar og dekkja. Ég setti 4-link undir Ford Ranger á sínum tíma og hafði stífuvasana utaná grindinni, af því að upprunalegu blaðfjaðrirnar voru þar. Nú veit ég ekki hvort og þá hvaða áhrif það hefur á fjöðrunina að hafa stífurnar innar eða utar.
Re: 4link smíði, upplýsingar
í þessu tilfelli verður bilið ekki mikið.
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur