Síða 1 af 1

Patrol hásinga handbremsuredding

Posted: 05.okt 2015, 12:40
frá Helgi1
Hvernig hafa menn verið að græja handbremsuna þegar þeir hafa sett patrol hásingar í aðra bíla?

Re: Patrol hásinga handbremsuredding

Posted: 05.okt 2015, 13:50
frá E.Har
Millikassa bremsa :-)

Re: Patrol hásinga handbremsuredding

Posted: 05.okt 2015, 14:24
frá Óskar - Einfari
Ég setti patrol afturhásingu undir hiluxinn hjá mér og notaði subaru 1800 bremsudælur, þær eru með handbremsu. Maður notar patrol bremsukjamman, minnir að það þurfti að stækka/snitta annað gatið á kjammanum fyrir subaru dæluna. Boltin í bremsurörið passa á milli þannig að því þarf ekki að breyta. Í rauninni finnst mér þetta ekkert sérstök handbremsa en bíllin hjá mér er SSK svo að handbremsan er bara notuð einusinni á ári þegar að bíllin fer í skoðun og dugar til þess.

Re: Patrol hásinga handbremsuredding

Posted: 05.okt 2015, 14:26
frá Óskar - Einfari
Ég pantaði dælurnar héðan: http://www.rockauto.com/
minnir að það hafi verið fyrir 1988 árgerð af subaru gl 1,8

Re: Patrol hásinga handbremsuredding

Posted: 05.okt 2015, 15:54
frá ojons
Ég lét bara jeppasmiðjuna græja handbremsuna aftan á hilux millikassan.

Re: Patrol hásinga handbremsuredding

Posted: 06.okt 2015, 21:25
frá Helgi1
Hvað kostaði sú aðgerð hjá jeppasmiðjuni?

Re: Patrol hásinga handbremsuredding

Posted: 07.okt 2015, 22:53
frá ojons
mig minnir að hún hafi verið í kringum 60þ kall.