Síða 1 af 1

Leki í 90 Cruiser

Posted: 22.jún 2015, 14:14
frá jongud
Núna í vetur varð ég alltaf var við einhverja bleytu í jeppanum hjá mér við hurðirnar bílstjórameginn. Mig grunaði fyrst hurðagúmmíin en þegar ég bónaði bílinn í vor tók ég eftir ryði undir festingunni fyrir toppgrindina. Þekkir einhver dæmi um það að þessir bílar leki þarna?

Re: Leki í 90 Cruiser

Posted: 29.jún 2015, 22:43
frá Bjarni67
Já þetta er þekkt vandamál með 90 cruserinn. Minn var alltaf með blautt gólf við aftursætin þar til að ég lagaði festingarnar á toppgrindinni

Re: Leki í 90 Cruiser

Posted: 30.jún 2015, 08:12
frá jongud
Bjarni67 wrote:Já þetta er þekkt vandamál með 90 cruserinn. Minn var alltaf með blautt gólf við aftursætin þar til að ég lagaði festingarnar á toppgrindinni


Er hægt að losa toppgrindina af án þess að rífa klæðninguna úr þakinu?
Ég meina, maður kemst að skrúfunum fyrir grindina að ofan, en myndu rærnar á móti detta inn undir toppklæðninguna eða eru þær fastar?

Re: Leki í 90 Cruiser

Posted: 30.jún 2015, 11:36
frá jeepcj7
Eru ekki allflestir bílar með hnoðrær í toppnum fyrir bogana orginal?

Re: Leki í 90 Cruiser

Posted: 01.júl 2015, 09:00
frá Bjarni67
Rærnar eru fastar í toppnum að innanverðu. Hjá mér var komið ryð í kringum götin þannig að einhverhverjar rær losnuðu úr toppnum þegar ég var að losa þær. Endaði með því að ég tók klæðningun úr toppnum og lagfærði þetta.