Síða 1 af 1
glóðarkerta skipti í GM 6.5TD
Posted: 10.jan 2011, 17:34
frá spámaður
sælir er einhver hérna sem hefur skipt um glóðarkerti í 6.5td?komin tími á mín og ég nenni ekki að gera þetta sjálfur ef það er mikið vesen. Ég veit að það er erfitt að komast að þeim farþegameginn, En þetta er aðalega spurning um að draslið sé ekki allt kolfast og maður endar með því að brjóta tvö-þrjú inni í block.þá er betra að leyfa þeim að svitna við það á verkstæðinu þó það kosti $$$.
(það er allt að snjóa á kaf hérna fyrir norðan)
kv hlynur
Re: glóðarkerta skipti í GM 6.5TD
Posted: 10.jan 2011, 18:11
frá jeepson
Þú ert sennilega best settur við að láta gera þetta á verkstæði. Þetta getur orðið dýr aðgerð ef kerti brotnar. En Þú losnar líka við alt vesenið sem fylgir þessu. En það er samt kanski spurning um að googla þetta og sjá hvaða niðurstöður þú færð.
Re: glóðarkerta skipti í GM 6.5TD
Posted: 10.jan 2011, 18:37
frá jeepson
Re: glóðarkerta skipti í GM 6.5TD
Posted: 10.jan 2011, 22:05
frá Þorsteinn
hvað er þetta gamall bíll? það er svo ekkert mál að taka innribrettin úr bílnum (ef þetta er chevrolet) og þá ertu kominn með miklu betra rými til að athafna þig. ég allavega tek brettinnalltaf úr ef ég þarf eitthvað að gera sem er ekki ofan á vélinni.
þegar ég tók kertin úr hjá mér þá sprautaði ég þau með wd 40 um kvöldið og tók þau úr daginn eftir og það var ekkert vesen.
kv. Þorsteinn
Re: glóðarkerta skipti í GM 6.5TD
Posted: 11.jan 2011, 01:01
frá spámaður
sælir takk fyrir þetta.bíllin er 1998 model GMC sierra,já ég var buinn að sjá þetta með plássið með innri brettin,en það er svolítið af dóti þar ofan á þeim.stundum er þetta kolfast í nýlegum bílum??svo kannski ekki í eldri bílum mjög misjafnt.
lenti einusinni í því að brjóta venjulegt neistakerti í bensínbíl þar sem var lítið pláss og ég var í 3-5 klst á dag í 5 daga að ná því úr.
var orðin mjöööög röndóttur í framan eftir það.nenni bara ekki svoleiðis pakka aftur.
kannski maður reyni þetta bara...það er ekkert víst að það klikki:)
Re: glóðarkerta skipti í GM 6.5TD
Posted: 11.jan 2011, 07:06
frá Sævar Örn
finndu bara minnsta mögulega skrallsett hjá þér og ekki taka neitt á þeim, jugga þeim bara fram og til baka þar til þau koma úr, þolinmæði skiptir mestu máli í þessu, ég vinn m.a. við þetta og hef aldrei brotið kerti í bílum sem annar hver maður slítur kerti í...
trooper og nissan t.d...
Re: glóðarkerta skipti í GM 6.5TD
Posted: 11.jan 2011, 08:17
frá juddi
Settu frekar góða ryðolíu á þetta frekar en WD40 og láttu liggja á jafnvel í nokkra daga og svo aftur áður en þú tekur úr
Re: glóðarkerta skipti í GM 6.5TD
Posted: 11.jan 2011, 10:16
frá JHG
Ég skipti um glóðarkerti í 6.2 og það var ekkert mál. Setti fastan lykil á og þau bara losnuðu :) Örugglega minna pláss hjá þér útaf túrbínunni ofl. en ættir allavegana að prófa í rólegheitunum.
Re: glóðarkerta skipti í GM 6.5TD
Posted: 11.jan 2011, 10:27
frá Þorsteinn
eina sem er fast í innra brettinu farþegameginn er loftsíuboxið. allt annað er kjurt þegar þú losar brettið.
ég var 3 min að losa það með loftlyklinum þegar ég tók það úr, en svo er spurning hvernig boltarnir eru. mínir voru þokkalegir.
Re: glóðarkerta skipti í GM 6.5TD
Posted: 11.jan 2011, 10:55
frá spámaður
já maður hefur oft lent í því td með fasta bolta að jugga þeim til og bleyta í þeim til skiptis með wd 40 og það virkar.
ætli maður skelli sér ekki bara í þetta, Ég hef svosem ráðist í vonlausari verkefni en þetta og sigrað á endanum.
takk fyrir góða hjálp.
kv hlynur.