eldsneytir vandamál i nissan navara

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
agnarsaem
Innlegg: 5
Skráður: 07.feb 2015, 21:13
Fullt nafn: Agnar Sæmundur Barðason
Bíltegund: nissan navara

eldsneytir vandamál i nissan navara

Postfrá agnarsaem » 07.feb 2015, 21:41

þetta byrjaði þannig að það var fint að keyra hann á meðan hann var kaldur en svo þegar hann fór að hitna fór hann að hiksta i hæga gangi

ef hann er svo skilinn eftir í hægagangi þá er ekki hægt að ná honum upp fyrir 1500rpm (nema eg færi i huddið og losaði tappann undir hráoliusíunni)

eg fór með hann á verkstæði og þeir heldu að það væri oliuverkið(sem eg tými ekki að skipta um ) svo heldu þeir að það væri drulla i tanknum (eg reif tankinn undan og þar var svolitil drulla,
ég keyri bilinn frá selfossi i bæinn snuðrulaust og i vinnuna um morguninn
eg set i gang eftir vinnu og þá fer hann i gang en drepur á ser eftir um 1 minutu og er tregur i gang en fer svo aftur i gang i um 1 minutu og þá er eins og hann missi allan kraft og drepur svo á ser

það er buið að skipta um hráoliusiuna 2
hreinsa tankinn
það er buið að nefna loft á spissum

eg var að spá i hvort hann myndi þrýsting i tanknum til ad hjálpa hráolidælunni
því þegar eg tek tankinn undan þá var return rörið brotið og eg veit ekki hvort það breyti eitthverju



User avatar

svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: eldsneytir vandamál i nissan navara

Postfrá svarti sambo » 07.feb 2015, 22:02

Spurning hvort að öndunin í tankinn sé stífluð. Getur prófað að taka áfyllingartappann í burtu í smá stund og ath hvort að hann geri þetta þá, eða bara að losa hann þegar að hann lætur svona og ath hvort að hann lagist.
Fer það á þrjóskunni


BragiGG
Innlegg: 157
Skráður: 29.maí 2010, 16:43
Fullt nafn: Bragi Geirdal Guðfinnsson

Re: eldsneytir vandamál i nissan navara

Postfrá BragiGG » 08.feb 2015, 10:34

Hvaða árgerð er þetta ?
1988 Toyota Hilux

User avatar

isak2488
Innlegg: 199
Skráður: 25.okt 2010, 21:22
Fullt nafn: Ísak Jansson
Bíltegund: LC HJ61

Re: eldsneytir vandamál i nissan navara

Postfrá isak2488 » 08.feb 2015, 10:47

1999


villi58
Innlegg: 2134
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: eldsneytir vandamál i nissan navara

Postfrá villi58 » 08.feb 2015, 10:52

Til að komast framhjá öllum lögnum aftur í tank og líka síu þá setja rafmagnsdælu við olíuverkið og brúsa með olíu og þá er búið að útiloka flest.


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 12 gestir