Stilla 4:88 í 8" hiluxköggul
Posted: 01.feb 2015, 16:56
Sælir félagar skellti mér í það í morgun að skipta út 4:10 hlutfalli í Hiluxhásingunni sem fer undir Bellu að aftan. Var búinn að finna mér 4:88 hlutfall. Tók pinnjónslegurnar af 4:10 og færið yfir á 4:88 pinjóninn og fékk hann góðan í húsið. Síðan færði ég kambinn á milli og skellti þessu saman svona til að skoða hvernig þetta mundi stillast inn hjá mér. Sá þá um leið að 4:88 kamburinn er um 6mm þynnri en 4:10 kamburinn svo ekki er hægt að stilla drifið. Nú er spurning þetta er orginal diskalás þarf ég 5mm speiser og lengri bolta til að koma þessu hlutfalli í eða er hægt að fá diskalæsingu sem er fyrir 4:88. Helst vantar mig 4:88 köggul og get látið raflásköggul í staðinn með ónýtu 4:10 hlutfalli. Svo líka speiser og bolta eða veit einhver hvar þetta fæst ódýrt. Er einhver sem hefur lent í þessu leiðinda máli.Það er 4:10 kamburinn sem stendur til hliðar við húsið 4:88 er kominn í og hann er 5 til 6 mm þynnri kveðja guðni