Síða 1 af 1
hlutföll terrano
Posted: 29.des 2014, 15:36
frá mikki
goðan dag hvað eru hlutföllin i terrano sjalfskiptum og beinskiptum 2,7 disel malið er að eg veit ekkert um hlutföll og þvi spyr eg er sem sagt að breyta terrannum hja mer i bsk ur ssk og hann kemur með til að vera a 36-38" þvi er spurningin hvaða drif a eg að nota ur bsk bilnum eða ssk
mbk mikki
Re: hlutföll terrano
Posted: 29.des 2014, 19:59
frá olei
Ég stend í þeirri meiningu að TDI bílarnir kringum 2000 séu á sömu hlutföllum hvort sem þeir eru sjálfskiptir eða beinskiptir. Ég hef heyrt talað um yngri terrano bíla þar sem eigendur kvarta yfir því að þeir séu lágt drifaðir - líklega er þar um að ræða bíla sem ítalska verktakafyrirtækið Impregilo flutti inn vegna framkvæmda við Kárahjnúkavirkjun. Sel það ekki dýrara en ég keypti.
Re: hlutföll terrano
Posted: 30.des 2014, 09:35
frá jongud
olei wrote:Ég stend í þeirri meiningu að TDI bílarnir kringum 2000 séu á sömu hlutföllum hvort sem þeir eru sjálfskiptir eða beinskiptir. Ég hef heyrt talað um yngri terrano bíla þar sem eigendur kvarta yfir því að þeir séu lágt drifaðir - líklega er þar um að ræða bíla sem ítalska verktakafyrirtækið Impregilo flutti inn vegna framkvæmda við Kárahjnúkavirkjun. Sel það ekki dýrara en ég keypti.
Terrano?
Impregilo notaði svo til eingöngu Nissan pickupa og fékk þá gegnum kaupleigu frá umboðinu...
Re: hlutföll terrano
Posted: 02.jan 2015, 15:38
frá Rúnarinn
Orginal hlutfallið í terrano sjálfskiptum er 4:37 en veit ekki með beinskipta.
Er með minn á 36" og setti í hann 5:42.