Síða 1 af 1
kasthjol nissan terrano
Posted: 29.des 2014, 00:01
frá mikki
goðan dag hafa menn lent i þvi að brjota miðjuna ur kasthjolinu a terrano 2,7 skrytið hvernig þetta for hja mer engin atök eða neitt var bara a 90 og svo missti hann girinn og do á honum var að rifa þetta nuna og þa kom þetta i ljos miðjan einfaldlega braut sig lausa fra restinni en pælingin er su hvort að þetta se einhvað sem er algengt
mbk mikki
Re: kasthjol nissan terrano
Posted: 29.des 2014, 00:03
frá ellisnorra
Athyglisvert. Ég hef ekki heyrt um þetta á neinum bíl. Mögulega gæti verið að þetta hafi fengið á sig högg í fortíðinni td við véla eða kúplingsskipti og komið sprunga og þreyta í restina.
Re: kasthjol nissan terrano
Posted: 29.des 2014, 00:17
frá biturk
Ég hef séð þetta í nissan sunny, miðjan bara rifnaði úr î innanbæjrkstri
Re: kasthjol nissan terrano
Posted: 29.des 2014, 00:19
frá mikki
þetta er svoldið fáranlegt þar sem þetta er að eg held soðið saman orginal og þetta bara gaf sig utaf ekki neinu a sem betur fer annað kasthjol bara forvitnast hvort að þetta se einhvað algengt dæmi :D
Re: kasthjol nissan terrano
Posted: 29.des 2014, 12:17
frá olei
Er þessi bíll beinskiptur eða sjálfskiptur?
Áttu mynd af þessu?
Re: kasthjol nissan terrano
Posted: 29.des 2014, 14:24
frá mikki
sjalfskiptur a þvi miður enga mynd af þessu
Re: kasthjol nissan terrano
Posted: 29.des 2014, 19:55
frá olei
Ég hef ekki heyrt um þetta fyrr í Terrano og dreg því í efa að þetta sé algengt vandamál.
Hinsvegar kemur stöku sinnum fyrir að flexplötur (kastjól fyrir ssk.) brotna vegna þreytu. Ef einhver skekkja er á afstöðunni á skiptingunni við vélina aukast augljóslega líkurnar á slíku.
Re: kasthjol nissan terrano
Posted: 29.des 2014, 20:40
frá ellisnorra
Þegar talað eru kasthjól, þá dettur mér bara í hug þungt swinghjól úr þykku stáli og er bara í beinskiptum bílum. Á ensku nefnt flywheel og lítur svona út

Síðan talar þú seinna um að þetta sé í sjálfskiptum bíl, þá erum við með allt annan hlut, flexplötu og lítur svona út

Ég hef heyrt um og séð brotnar flexplötur, ekki í terrano reyndar en í öðrum bílum.
Hvort ertu að meina kasthjól eða flexplötu?
Re: kasthjol nissan terrano
Posted: 25.mar 2016, 16:57
frá brunki
það er líka gott að láta afspenna málmin það hjá felgur.is