Síða 1 af 1

York 210 í patrol

Posted: 25.des 2014, 13:32
frá jeepson
Sælt verið fólkið og gleðilega hátið.. Ég er með York 210 dælu sem að ég hafði hugsað mér að setja í patrol. Ég get bara ekki með nokkru móti séð hvernig í F...
ég á að koma dæluni fyrir. Hefur einhver sett svona dælu í patrol og á þá jafnvel til myndir af festingum og mál á reiminni??
Mbk Gísli.

Re: York 210 í patrol

Posted: 25.des 2014, 18:41
frá Hagalín
Finndu þér Ac dælu úr 2.8 patrol frekar. Það er allt til staðar neðarlega bilstjoramegin á vélinni. Man sjalfur ekki eftir reimdælu ofaná 2.8 velinni.

Re: York 210 í patrol

Posted: 25.des 2014, 18:45
frá jeepson
Vil helst koma þessari í hjá mér. Þetta afkastar alveg hrikalega vel og ég er of latur til að nenna að græja ac dælu þannig að hún sé nothæf sem loftdæla. Svo lýst mér svo vel á að hafa smurkjallaran sem er í york dæluni. En ég er get líka altaf haldið áfram að hafa fini dæluna.

Re: York 210 í patrol

Posted: 25.des 2014, 18:51
frá Járni
Svona dælur eru bara kúl.

Eins og Hagalín segir, það eru boltagöt neðst á blokkinni bílstjóramegin, þar kemur AC dælan orginal. Hann Eiður okkar hér á spjallinu er með svona alvöru dælu akkúrat á þessum stað í gamla Patrol. Hann getur án efa reddað þér öllum upplýsingum og myndum.

Jólakveðjur!

Re: York 210 í patrol

Posted: 25.des 2014, 21:01
frá jeepson
Járni wrote:Svona dælur eru bara kúl.

Eins og Hagalín segir, það eru boltagöt neðst á blokkinni bílstjóramegin, þar kemur AC dælan orginal. Hann Eiður okkar hér á spjallinu er með svona alvöru dælu akkúrat á þessum stað í gamla Patrol. Hann getur án efa reddað þér öllum upplýsingum og myndum.

Jólakveðjur!


Er hann með york þar eða bara patrol ac dælu?

Re: York 210 í patrol

Posted: 26.des 2014, 12:50
frá Járni
Ég er ekki alveg 100% um hvort það sé York eða annað svipað, en nokk viss um að þetta sé hannað sem loftdæla en ekki AC.

Re: York 210 í patrol

Posted: 26.des 2014, 15:15
frá ellisnorra
York er hannað sem ac dæla og ég held að það megi snúa henni á flesta vegu nema simpilhausinn beint niður.
Hér er mynd af York á AMC mótor
york á amc.jpg
york á amc.jpg (136.27 KiB) Viewed 3602 times

Re: York 210 í patrol

Posted: 26.des 2014, 18:12
frá jeepson
Ég var búinn að lesa mig til um york dælurnar. Og það er mælt með að þær standi uppréttar þó þær þoli að standa á hlið.

Re: York 210 í patrol

Posted: 26.des 2014, 23:24
frá ellisnorra
Pointið með myndinni var að þarna hefur framleiðandinn haft hana á hlið :)

Re: York 210 í patrol

Posted: 27.des 2014, 00:25
frá svarti sambo
elliofur wrote:Pointið með myndinni var að þarna hefur framleiðandinn haft hana á hlið :)


Þetta lítur út eins og að framleiðandinn sé að reyna að selja fleiri dælur. Persónulega myndi ég aldrei halla henni meira en 45°. Er sjálfur að vandræðast með eina svona dælu, sem mig langar að setja á 7.3 powerstroke. Spurningin er bara hvort að ég verði að fórna núverandi dælu eða ekki. Á eftir að fara í svolitla rannsóknarvinnu með það, hvaða möguleikar eru í boði.

Re: York 210 í patrol

Posted: 04.jan 2015, 16:28
frá Þráinn
https://dl.dropboxusercontent.com/u/95346463/york2CylinderServiceManual.pdf

hér er PDF skrá sem ég fann á netinu einhverntímann með öllum upplýsingum um york dælurnar