Patrol 2,8 L. Diesel

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
bjsam
Innlegg: 240
Skráður: 01.feb 2010, 17:57
Fullt nafn: Bjarni Samúelsson

Patrol 2,8 L. Diesel

Postfrá bjsam » 22.des 2014, 12:22

Sælir félagar, hvar er best að kaupa heddpakkningu og vatnsdælu,strekkjarahjól og annað sem þarf til að skifta umm hedd á Patrolvél 2,8 l. 95. model og er gott að nota pakkningalím í sprayi á pakkninguna og er einhver sem veit hersluna á boltum og á mynd af röðinni á þeim í herslu, allar uppl. vel þegnar sem menn hafa um hvað best er að gera í svona aðgerð. Mbkv. Bjarni




thorjon
Innlegg: 176
Skráður: 17.des 2012, 23:29
Fullt nafn: Þórjón P. Pétursson
Bíltegund: Patrol Y61

Re: Patrol 2,8 L. Diesel

Postfrá thorjon » 22.des 2014, 19:36

ég var að ganga í gegnum þetta helvíti :( Pantaði pakkningarsett frá Milner offroad.co.uk þeir eiga líka held ég vatsdælu ofl, kostaði minnir mig 78 pund í staðinn fyrir 70 og ehvað þúsund í umboðinu !! sá reyndar sama pakkningarsett á Aliexpress fyrir $30... ef þú mátt vera að því að bíða, Milner voru mjög fljótir að senda.


thorjon
Innlegg: 176
Skráður: 17.des 2012, 23:29
Fullt nafn: Þórjón P. Pétursson
Bíltegund: Patrol Y61

Re: Patrol 2,8 L. Diesel

Postfrá thorjon » 22.des 2014, 19:37

Steingleymdi að ég keypti heddboltana þar líka, 20 pund í stað 47þús í umboði !


Höfundur þráðar
bjsam
Innlegg: 240
Skráður: 01.feb 2010, 17:57
Fullt nafn: Bjarni Samúelsson

Re: Patrol 2,8 L. Diesel

Postfrá bjsam » 22.des 2014, 20:59

Takk fyrir ,ég skoða þetta dæmi held ég bara.Kv.


Höfundur þráðar
bjsam
Innlegg: 240
Skráður: 01.feb 2010, 17:57
Fullt nafn: Bjarni Samúelsson

Re: Patrol 2,8 L. Diesel

Postfrá bjsam » 24.des 2014, 12:17

Bara til gamans þá pantaði ég á mánudagskvöld í Patrol 2,8l. frá Milner.uk , tímareim, pakkningasett í vélina, heddbolta, vatnsdælu. strekkjarahjólin ,kúplingsþræl og fóðringu, auka pústpakkningu, ásamt loftsíu ég sótti þetta í DHL. núna fyrir hádegi og þetta kostaði með öllum gjöldum og flutningi 58.000 ísl. kr. Jólakveðja Bjarni


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 29 gestir