einarkind wrote:góđan daginn þannig er mál međ vexti ađ ég á eitt stikkI 38" hilux sem mér langar til ađ smìđa ùrhleypibùnađ ì var ađ velta fyrir mér hvenig men hafa veriđ ađ ùtbùa felgur ì þetta ég er međ álfelgur sem ég held ađ sé ekki æskilegt ađ sjòđa ì hef heyrt um ađ menn sèu ađ kaupa sexkantstál og breyta ì langa felgurò og svo spöng â milli til ađ sleppa þvì ađ skemma felgurnar og lìka eitt hver er òdýrast ađ kaupa ì þetta ventlakistu krana og spòlur o.s.f.v sýniđ mér nù hversu mikil viksu þiđ bùiđ yfir
Hjá mér eru langar rær en eru ekki lengri en að spöngin rétt sleppi við lokuna, 10 mm slöngustútur skrúfaður í spöng síðan c.a. 8 cm. tveggja strigalaga gúmmíslanga og slöngustútur í ytri endann + 1/4 ryðfrí múffa og snúningshné fyrir 8 mm slöngu. Fyrsta dýfingin í krapa gekk vel, gúmmíslangan getur lagst þvert og þar með engar skemmdir.
Mæli ekki með að hafa rærnar alla leiðina út svo hné sé á réttum stað, ávísun á brotna bolta ef maður fær t.d frostköggul í felgu eða eitthvað annað. Gefur augaleið hver skaðinn getur orðið, hlusta ekki á nein rök fyrir rær sem ná út af spöng sem hnéð er skrúfað í sé í lagi, stórhættulegt !!!!! sem flestir skilja.