Síða 1 af 1
Læsing að framan.
Posted: 16.des 2010, 20:32
frá Kölski
Ætla fara skella framlæsingu í hiluxinn minn. Með hverju mæla menn.???
Re: Læsing að framan.
Posted: 16.des 2010, 23:03
frá danfox
1. Loft
2. Nospin.
Kv Siggi
Re: Læsing að framan.
Posted: 17.des 2010, 03:08
frá Kölski
Loft 100%
Re: Læsing að framan.
Posted: 17.des 2010, 08:44
frá -Hjalti-
Sjóða þetta ! ódýrast og virkar best
Re: Læsing að framan.
Posted: 17.des 2010, 12:05
frá Dodge
Ekki nospin að framan, soðið bíður uppá í fyrsta lagi mun betri aksturseiginleika, þ.e. hendir sér ekki tli hliðar.
Auk þess er fríslagið í nospin þess valdandi að brothætta á framöxlum margfaldast.
Það er hvorugt hægt að nota í almennum akstri, ef þú ert að leita eftir því þá er það loft eða tregða
No-spin er eingöngu afturhásingabúnaður að mínu mati og fínt til þess brúks.
Re: Læsing að framan.
Posted: 17.des 2010, 17:00
frá Kölski
Þar sem þetta er einkabíllinn minn þá þá verður hann ekki soðinn að framan. Langara að loftlæsa honum.
Re: Læsing að framan.
Posted: 17.des 2010, 21:38
frá Örn Ingi
Hvaða árgerð ertu með?
Re: Læsing að framan.
Posted: 17.des 2010, 21:56
frá JonHrafn
Ef þú ert með hásingu að framan þá er nú eitthvað framboð af LSD kögglum. Kemur manni aðeins lengra en alveg ólæst. Annars bara safna fyrir loftlæsingu.
Re: Læsing að framan.
Posted: 17.des 2010, 21:56
frá Kölski
Hilux x-cab 98.
Re: Læsing að framan.
Posted: 17.des 2010, 22:44
frá Einar
Ég hef átt bíla bæði með soðnu framdrifi og NoSpin í framdrifi. Soðið drif langar mig ekki í aftur, hræðilegur búnaður, það er ástæða fyrir því að bílar eru með mismunadrifum. NoSpin kom hins vegar á óvart, fann ótrúlega lítið fyrir því og miklu minna en öðru eins sem var í afturdrifinu.
Re: Læsing að framan.
Posted: 18.des 2010, 15:23
frá KÁRIMAGG
Ég persónulega mæli sterklega með því að menn skoði lock right lásana í framdrif
Re: Læsing að framan.
Posted: 19.des 2010, 09:36
frá AgnarBen
Detroit TrueTrac Limited slip gírlás hefur verið að fá góða dóma, keypti svona nýjan lás um daginn á ebay á ca 360 USD með sendingarkostnaði innan USA en ég veit ekki hvort þetta er til í Hilux. Bara googla ... hann er frá Eaton.