xj cherokee gefur ekki neista
Posted: 14.nóv 2014, 00:21
Ég er í smá veseni þar sem er að reyna halda einum xj gangandi (held mikið uppá þá) en lenti í því þegar ég ætlaði að keyra hann inn í skúr þá fór hann ekki í gang, startaði en gaf ekki neista. Ég skipti um háspennukeflið (átti annað) en það breytti engu. Það var gaukað að mér að sveifarás skynjarin gæti verið að klikka, ég prufaði að fikta í honum en það breytti ekki neinu.
Ef einhver hérna hefur fundið lausn á svipuðu máli og klórað sig fram úr því væri frábært ef hann gæti deilt því.
mbk Þröstur
Ef einhver hérna hefur fundið lausn á svipuðu máli og klórað sig fram úr því væri frábært ef hann gæti deilt því.
mbk Þröstur