Patrol bremsur og hleðslujafnari

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
bth
Innlegg: 12
Skráður: 20.maí 2013, 12:24
Fullt nafn: Bergur Þórðarson

Patrol bremsur og hleðslujafnari

Postfrá bth » 13.nóv 2014, 22:41

Sælir Spjallarar.
Ég er með Patrol Y60 sem er farinn að leka bremsuvökva að aftan. Virðist sem rörin fyrir ofan demparaturninn séu vandamálið. Sé ekki enn hvert þeirra það er og að óbreyttu virðist þurfa að skipta þeim öllum út. Finnst reyndar staðsetning á hleðslujafnaranum, ekki sú besta, og hvað þá að fara með rörin fram og aftur yfir demparaturninn. Eru menn ekki eitthvað að breyta þessu, færa jafnarann fram fyrir hásingu, og stytta þar með rörin?




Haukur litli
Innlegg: 329
Skráður: 08.mar 2010, 12:43
Fullt nafn: Haukur Þór Smárason

Re: Patrol bremsur og hleðslujafnari

Postfrá Haukur litli » 15.nóv 2014, 17:36

Liggur ekki bara eitt rør aftur sem deilist á hásingunni? Rifdu allt hledslujafnaradraslid úr og hentu thví. Komdu fyrir "manual proportioning valve" alveg vid høfuddæluna og leggdu rør frá honum og aftur ad hásingu.

Ég hef gert thetta vid 3 bíla og allir bremsudu their betur og thad var minna drasl á hásingunum.


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 54 gestir