Samsláttarpúðar?

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.
User avatar

Höfundur þráðar
andrib85
Innlegg: 206
Skráður: 10.jan 2012, 23:09
Fullt nafn: Andri Björnsson
Bíltegund: Ford

Samsláttarpúðar?

Postfrá andrib85 » 09.nóv 2014, 16:07

Sælir. ég er með ford Ranger sem vigtar um 1350kg að framan, eins og staðan er núna þá er ég með þessa klassísku Benz púða að framan og ég er ekki sáttur við þá. hvaða samsláttarbúðar eru í boði sem gefa ekki svona mikið rebound. p.s. ég veit að bump stop er málið en ég tími ekki að fara útí það núna.


Ford Ranger 46" Powered by Chevy, driven by Nissan

User avatar

ingi árna
Innlegg: 101
Skráður: 19.jan 2011, 12:35
Fullt nafn: Ingólfur Árnason
Bíltegund: HJ-61 "88

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá ingi árna » 10.nóv 2014, 14:29

Ég er í sömu vandræðum að aftan hjá mér, skjóta bílnum svakalega upp ef hann nær í samsláttinn.
Ég veit að einhverjir hafa borð þvert í þá til að reyna mýkja þá eða skera neðsta kubbinn af, ég er að pæla í að bora mína og sjá hvað gerist.


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá lecter » 11.nóv 2014, 01:50


User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá ellisnorra » 11.nóv 2014, 08:07

Ég skar neðsta hringinn af bens púðunum hjá mér, þvílík breyting á bílnum! Eftir skurðinn var þetta alveg þokkalegt, ekkert bump-stop gott en hann var ekki að sprengja sig í sundur í hvert skipti.
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

Hjörturinn
Innlegg: 643
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Hjörturinn » 11.nóv 2014, 17:46

Varðandi það að mýkja púðanna, er ekki einmitt málið að gera þá stífar? Er ekki vandamálið að þeir eru að taka of mikinn þátt á fjöðruninni?
Ef maður styttir púðann þá er fjöðrunarkerfið búið að taka betur við álaginu þegar þetta skellur svo á púðanum og þá ætti að vera minna bakslag
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Sævar Örn » 11.nóv 2014, 17:58

Hvað um að nota frekar alvöru tvívirka dempara og láta þá sjá um sundurslagið ekki síður en samslagið
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

Lindemann
Innlegg: 147
Skráður: 02.feb 2010, 17:24
Fullt nafn: Jakob Bergvin Bjarnason
Bíltegund: Cherokee ZJ

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Lindemann » 11.nóv 2014, 18:44

Demparar endast nú ekki mjög lengi ef þeir slá harkalega saman. Ég myndi allavega ekki vilja sleppa samsláttarpúðum í bíl sem þarf að fjaðra mikið
Suzuki Vitara '97 32"
Jeep Grand Cherokee '95 38"

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Sævar Örn » 11.nóv 2014, 19:17

Nei ekki sleppa þeim, nota þessa áfram en láta demparana "dempa" fráhrindiaflið(rebound force) í samsláttarpúðunum
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

Magni
Innlegg: 474
Skráður: 11.aug 2011, 15:42
Fullt nafn: Magni Helgason
Bíltegund: Nissan Patrol

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Magni » 11.nóv 2014, 19:23

En hvað með að bora gat í gegnum samsláttarpúðana? Þeir eru flest allir með loftrúm í miðjunni sem hjálpar við samláttinn. Sumir hafa borað neðan úr plattanum þar sem púðinn leggst saman. Svo væri hægt að bora gat í gegnum púðann, það myndi hjálpa að hleypa loftinu úr og hægt væri að vera með nett gat til að byrja með... Bara pæling.
- Nissan Patrol 2008 L86 V8 44AT -

User avatar

Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Freyr » 11.nóv 2014, 21:19

Sævar Örn wrote:Nei ekki sleppa þeim, nota þessa áfram en láta demparana "dempa" fráhrindiaflið(rebound force) í samsláttarpúðunum


Ef demparinn á að vera nógu stífur í sundur til að halda vel við kraftinn sem púðinn gefur þá er hann allt of stífur alla restina af sviðinu þegar púðinn tekur ekki þátt. Slík uppsetning er glötuð, búinn að prófa það sjálfur á fleiri en einum bíl.

User avatar

Höfundur þráðar
andrib85
Innlegg: 206
Skráður: 10.jan 2012, 23:09
Fullt nafn: Andri Björnsson
Bíltegund: Ford

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá andrib85 » 11.nóv 2014, 23:58

Ég hugsa að èg byrji að stytta púðana. Sjá hvað það gerir
Ford Ranger 46" Powered by Chevy, driven by Nissan


grimur
Innlegg: 891
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá grimur » 12.nóv 2014, 00:05

Þessar hugmyndir með að loftrloftrýmið inni í benz púðunum hafi eitthvað að segja í fjöðrun á bíl eru algerlega óraunhæfar. Við að þjappa púðanum saman hálfa leið er þrýstingurinn orðinn ca 1kg/cm2 sem gæti verið kannski 7 kg sirka miðað við nálægt 30mm þvermál á gati. Það er nánast ekki neitt samanborið við kraftinn sem þarf til að pressa svona púða hálfa leið saman.
Að skera af, bora þvert og annað slíkt hefur allt önnur og meiri áhrif.

Kv
G

User avatar

Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Freyr » 12.nóv 2014, 00:23

Passa bara að demparinn nái ekki að slá saman fyrir vikið.

Varðandi loftpúðavirknina sem nefnd er hér að ofan: Svona púði pressast ca. 60% saman (7 cm af 12) en loftrýmið nær ca. 3/4 upp púðann, Það rými þjappast saman um ca. 70% (geri ráð fyrir að efsti hlutinn með rónni pressist mun minna en restin) sem þýðir ca. 3x hærri loftþrýstingur en í umhverfinu að því gefnu að ekkert loft sleppi út. Sá litli þrýstingur virkar á örfáa cm2. Niðurstaðan er sú að þetta eru örfá N sem þrýsta bílnum upp og hafa ekkert að segja. 3x14,7 psi = 44 psi / 200 N / 20 kg, á fertommu, miðjugatið er sennilega nálægt fertommu, þetta eru s.s. nálægt 20 kg í lyftikraft sem loftþrýstingurinn í svona púða skapar sem er bara dropi í hafið og skiptir því engu í heildarmyndinni.

Hinsvegar hef ég sjálfur stundað það að bora svona púða alveg í klessu með góðum árangri en það byggir á því að gúmmíið verður svo mjúkt að það klessist saman við mikið minna álag. Fyrir vikið er uppsöfnuð orka í púðanum mikið minni en í óboruðum og því þrýstir hann bílnum ekki upp af sama krafti og óboraður.

Kv. Freyr

User avatar

Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Freyr » 12.nóv 2014, 00:24

hehe jæja ég var of lengi að skrifa minn póst, grímur búinn að koma því sama til skila.

User avatar

Ýktur
Innlegg: 66
Skráður: 09.okt 2012, 13:00
Fullt nafn: Bjarni Gunnarsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Ýktur » 12.nóv 2014, 13:45

Það er nýleg umræða um þetta á f4x4 vefnum: http://www.f4x4.is/spjallbord/umraeda/samslattarpudar-2/
Þar vilja menn meina að púðar úr "froðu-úrethan" virki ekki mikið verr en glussa samsláttur.

Annað með þessa "Bens" púða, það er ekki sama original púðar úr Bens og svo eftirlíkingin sem Bílanaust er að selja, þeir eru miklu miklu stífari. Original Bens púðar skjóta jú bílnum upp en eru ekki nærri eins slæmir og eftirlíkingin. Eftirlíkingin þekkist á því að hún er fest með bolta sem gengur niður í hana en original púðar eru með pinna uppúr og festir með þar til gerðri klemmu.

User avatar

MixMaster2000
Innlegg: 101
Skráður: 05.des 2011, 20:41
Fullt nafn: Heiðar Þorri Halldórsson
Bíltegund: Ford Bronco 1974

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá MixMaster2000 » 12.nóv 2014, 15:59

Er þetta ekki bara málið ef maður tímir ekki að fara í loft stoppara.
http://www.polyperformance.com/shop/Day ... p-208.html

kv Heiðar
Ford Bronco 1974, 351W EFI
Polaris 800 RMK 155
Polaris Fusion, 900


Sæfinnur
Innlegg: 103
Skráður: 24.apr 2013, 16:19
Fullt nafn: Stefán Gunnarsson
Bíltegund: CJ 7 360

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Sæfinnur » 13.nóv 2014, 08:42

MixMaster2000 wrote:Er þetta ekki bara málið ef maður tímir ekki að fara í loft stoppara.
http://www.polyperformance.com/shop/Day ... p-208.html

kv Heiðar

Ég setti svona undir Econnoline sem ég átti einusinni. Þeir fóru í tætlur í fyrstu ferð.

User avatar

Lindemann
Innlegg: 147
Skráður: 02.feb 2010, 17:24
Fullt nafn: Jakob Bergvin Bjarnason
Bíltegund: Cherokee ZJ

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Lindemann » 13.nóv 2014, 10:43

Veit einhver úr hvaða bílum þessir "Benz púðar" koma upprunalega?

Augljóslega eru þeir ekki notaðir í allar Benz bifreiðar, mig langaði að sjá hvað "orginal" púðar kosta :)
Suzuki Vitara '97 32"
Jeep Grand Cherokee '95 38"

User avatar

Ýktur
Innlegg: 66
Skráður: 09.okt 2012, 13:00
Fullt nafn: Bjarni Gunnarsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Ýktur » 13.nóv 2014, 11:09

Lindemann wrote:Veit einhver úr hvaða bílum þessir "Benz púðar" koma upprunalega?

Ég keypti svona í Ræsi á sínum tíma með því að biðja um "Jeppapúða". Hef trú á því að þeir í Öskju kannist líka við málið. Heyrði tvær útgáfur af því úr hverju þetta er, annars vegar úr Bens sendibílum svokölluðum kálfum og hins vegar væri þetta notað undir stýrishúsið á stórum Bens vörubílum.

Sæfinnur wrote:Ég setti svona undir Econnoline sem ég átti einusinni. Þeir fóru í tætlur í fyrstu ferð.

Áhugavert, getur verið að froðan dragi í sig vatn þegar púðarnir þenjast út aftur eftir samslag. Vatnið frýs og púðinn springur við næsta samslag...

User avatar

Lindemann
Innlegg: 147
Skráður: 02.feb 2010, 17:24
Fullt nafn: Jakob Bergvin Bjarnason
Bíltegund: Cherokee ZJ

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Lindemann » 13.nóv 2014, 12:44

Voru púðarnir sem þú keyptir með pinna og splitti?
Suzuki Vitara '97 32"
Jeep Grand Cherokee '95 38"

User avatar

Ýktur
Innlegg: 66
Skráður: 09.okt 2012, 13:00
Fullt nafn: Bjarni Gunnarsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Ýktur » 13.nóv 2014, 12:53

Þeir voru með pinna og splitti/klemmu til að festa þá.

User avatar

Lindemann
Innlegg: 147
Skráður: 02.feb 2010, 17:24
Fullt nafn: Jakob Bergvin Bjarnason
Bíltegund: Cherokee ZJ

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Lindemann » 13.nóv 2014, 13:12

Ok, þeir kosta rúm 6þús stykkið orginal og koma úr benz kálfi
Suzuki Vitara '97 32"
Jeep Grand Cherokee '95 38"

User avatar

Ýktur
Innlegg: 66
Skráður: 09.okt 2012, 13:00
Fullt nafn: Bjarni Gunnarsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá Ýktur » 13.nóv 2014, 14:01

Lindemann wrote:Ok, þeir kosta rúm 6þús stykkið orginal og koma úr benz kálfi

Hvað kostar eftirlíkingin í Bílanaust?

User avatar

RunarG
Innlegg: 194
Skráður: 24.sep 2010, 08:55
Fullt nafn: Rúnar Þór Gestsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá RunarG » 13.nóv 2014, 14:42

Ýktur wrote:
Lindemann wrote:Ok, þeir kosta rúm 6þús stykkið orginal og koma úr benz kálfi

Hvað kostar eftirlíkingin í Bílanaust?


Þeir kosta meira en það minnir mig. Man nú samt ekki hvað þeir kostuðu!
Nissan Patrol 44" fulllæstur með lógír og öllu draslinu

User avatar

MixMaster2000
Innlegg: 101
Skráður: 05.des 2011, 20:41
Fullt nafn: Heiðar Þorri Halldórsson
Bíltegund: Ford Bronco 1974

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá MixMaster2000 » 15.nóv 2014, 01:55

Sæfinnur wrote:
MixMaster2000 wrote:Er þetta ekki bara málið ef maður tímir ekki að fara í loft stoppara.
http://www.polyperformance.com/shop/Day ... p-208.html

kv Heiðar

Ég setti svona undir Econnoline sem ég átti einusinni. Þeir fóru í tætlur í fyrstu ferð.


Já ok. Ég hef ekki prófað þetta sjálfur.

kv Heiðar
Ford Bronco 1974, 351W EFI
Polaris 800 RMK 155
Polaris Fusion, 900

User avatar

MixMaster2000
Innlegg: 101
Skráður: 05.des 2011, 20:41
Fullt nafn: Heiðar Þorri Halldórsson
Bíltegund: Ford Bronco 1974

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá MixMaster2000 » 15.nóv 2014, 01:57

Lindemann wrote:Veit einhver úr hvaða bílum þessir "Benz púðar" koma upprunalega?

Augljóslega eru þeir ekki notaðir í allar Benz bifreiðar, mig langaði að sjá hvað "orginal" púðar kosta :)


Keypti einmitt svona í Ræsi líka. fyrir möööörgum árum síðan

Ég er reyndar með eftirlíkingu núna

kv Heiðar
Ford Bronco 1974, 351W EFI
Polaris 800 RMK 155
Polaris Fusion, 900


juddi
Innlegg: 1242
Skráður: 08.mar 2010, 10:45
Fullt nafn: Dagbjartur L Herbertsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá juddi » 15.nóv 2014, 15:00

Það eru til einhverjir foam púðar í Stál og stönsum
Daggi S:6632123 snurfus@snurfus.is

User avatar

nobrks
Innlegg: 327
Skráður: 31.jan 2010, 21:12
Fullt nafn: Kristján Arnór Gretarsson

Re: Samsláttarpúðar?

Postfrá nobrks » 15.nóv 2014, 19:58

Ég prófaði afskorinn eftirlíkingarpúða m spacer í staðin fyrir Langan LC púða, því mér fannst LC púðinn taka of mikinn þátt í samslaginu.

Afskorni púðinn var vægast sagt ömurlegur.

Setti LC púðann aftur í og skar aðeins úr fyrsta hringnum, þvílík hamingja
1200kg að framan


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 68 gestir