Síða 1 af 1

Vifta á Intercooler 3.0 Patrol

Posted: 13.des 2010, 09:53
frá Hagalín
Var að flett í manual sem ég á til á pdf formi um Patrol. Þar sá ég að menn erlendis hafa verið að setja kæliviftu á Intercooler á 3.0 Patrol vélina. Þar segir hann að þó að skópið sé á húddinu nær hann ekki alvöru kælingu fyrr en á 90 km hraða.

Hafa menn eitthvað prufað þetta hér heima?

Image

Re: Vifta á Intercooler 3.0 Patrol

Posted: 13.des 2010, 12:15
frá Sævar Örn
meikar sens, orginal á mitsubishi til dæmis...

Re: Vifta á Intercooler 3.0 Patrol

Posted: 13.des 2010, 13:14
frá Brjótur
Ég veit að á 2.8 vélinni er vifta sem fór af stað á einhverjum tímapunkti, en ég veit um einn sem setti hana á rofa svo hann gæti notað hana þegar hann vildi, held að það væri ráð hja mönnum að gera þetta :) ég ætla að setja svona fyrir framan minn í grillinu

kveðja Helgi

Re: Vifta á Intercooler 3.0 Patrol

Posted: 13.des 2010, 14:06
frá Hagalín
Já, spurning um að prófa þetta, þetta er nú ekki mikill kostnaður að fá einhverja netta viftu á þetta. En Helgi þú ert með 4.2tdi er það ekki?

Re: Vifta á Intercooler 3.0 Patrol

Posted: 13.des 2010, 16:54
frá Brjótur
Sæll jú ég er núna með 4.2 og með coolerinn fyri framan vatnskassa og ætla að setja viftuna sem var fyrir framan kassann þegar 3.0 vélin var í og ég ætla að hafa viftuna á rofa, með þessari viftu fæ ég kælingu á coolerinn og mótorinn þegar ég vil
ég myndi mæla með þessari aðgerð.

kveðja Helgi