Síða 4 af 8

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 20.jan 2015, 18:22
frá svarti sambo
Það er örugglega önnur magnstilling á verkinu og í lausagangi gætir þú þurft að gefa inn í ræsingu. Ef verkið passar við. Þekki það bara ekki.

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 20.jan 2015, 18:49
frá Sigurjon107
Guðni, Það á að passa oliuverk úr 2L á 2L-T með minni bestu vitund. Allavegana gat ég tekið olíuverk af non-turbo og það passaði yfir á turbo-vélina hjá mér.

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 20.jan 2015, 19:07
frá siggisigþórs
er ekki sia fyrir innan banijoboltan sem gæti verið stífluð

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 20.jan 2015, 19:15
frá sukkaturbo
Sæll búinn að taka hana og hreinsa engin drulla þar en það var smávegis drulla eða ryð á pinnanum sem er neðan í ádrepara segullokanum. Sigurjón veistu un verk sem ég gæti prufað. gsm 8925426

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 20.jan 2015, 19:55
frá Stóri
sindrim96 wrote:á til olíuverk af 2L. ef thad passar a milli.



var ekki verið að bjóða þér það :) ?

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 20.jan 2015, 20:28
frá sukkaturbo
jú er búinn að senda honum skilaboð

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 21.jan 2015, 00:52
frá StefánDal
Ég er með 3.9 v8 range rover vél til sölu. Var í Hilux og virkaði flott í honum. Nýlegur blöndungur og allt utan á. Skipting og millikassi úr Rover en brotið hús á skiptingunni.

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 21.jan 2015, 07:12
frá sukkaturbo
Sæll Stefán er hilux hús á þessu eða range rover hús sem er brotið ég á hilux kassa og kúpplings hús og áttu myndir handa mér hef áhuga á að skoða málið. kveðja guðni mail gudnisv@simnet.is

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 21.jan 2015, 17:03
frá sukkaturbo
Sælir félagar búinn að taka olíuverkið úr og er að fá Non turbo olíverk sem ég ætla að setja í. Tók spýssana úr vélinni og þjöppumældi hana til öyggis.Hún var jöfn á öllum stimplum og þjappaði hún 1500 Kíló paskal eða hvað þetta nú heitir allt saman. Allavega hníf jöfn á öllum. Svo hún hlítur að vera í einhverju lagi enda ríkur hún í gang en deyr svo höktandi út.Tók eftir því í gær að hún fyllti 2 lítra coke flösku í nokkrum störtum en yfirleitt hefur varla komið dropi frá henni úr affallinu. Svo þetta er upp og niður.

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 22.jan 2015, 12:33
frá sukkaturbo
Sælir félagar reif olíuverkið í sundur og það er fullt af ryði og útfellingum og fastir ventlar og tærðir gormar líklega ónýtt.

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 22.jan 2015, 12:45
frá sukkaturbo
Þarna sést næsta verkefni sem verið er að byrja á en þetta er gamall Rússi sem vinur minn á.

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 22.jan 2015, 12:49
frá jeepcj7
Djöfull er rússinn flottur þetta er eitt alglæsilegasta jeppaboddý sem til er.

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 22.jan 2015, 16:19
frá Bubbi byggir
Heirðu frændi þetta er glæsilegur rússi og akkurat sá bíll sem ég hef verið að dreyma um svo dúkkar hann upp hjá þér :((. Andskxxxxx lukka hjá þér, verður gaman að fylgjast með þessu verkefni.

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 22.jan 2015, 17:16
frá sukkaturbo
Sælir já þessi rússi verður fín að verki loknu. En aftur að Bellu og ólíuverkinu. Fékk annað gamalt Non turbo verk í fallegum kassa í dag. Ekki leit það vel út svart og tímabeltis hjólið ryðgað. Ekki gat ég snúið verkinu með handaflinu einu saman og virðist það vera kolfast. Setti það í olíu bað yfir nóttina. Hversu mikið má taka á svona olíuverki. Eða er það þegar orðið skemmt af stöðu þ.þegar það festist svo maður geti ekki skrúfað það með hendi.

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 22.jan 2015, 21:20
frá juddi
Er það raunhæfur mælikvarði að þú getir ekki snúið því með hendinni ?

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 22.jan 2015, 21:30
frá grimur
Klára bara að rífa og þrífa, og setja saman?

Það verður ekki ónýtara en ónýtt.....

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 22.jan 2015, 22:56
frá sukkaturbo
Sælir félagar ég gat snúið gamla ónýta verkinu með hendinni. En nyja gamla drulluga verkið vill ekki snúast með handaflinu svo ég set á það rör töng á morgun og sný það í gang

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 23.jan 2015, 10:11
frá karig
sælir, ég tók olíuverk úr mínum hilux í fyrra vor, það var með nýjum þéttingum í lokinu og virkaði þegar það fór úr, keyrt 400 þ. en þú getur fengið það ef það hjálpar eitthvað, það er a.m.k. ekki fullt af drullu og skít.......

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 23.jan 2015, 17:23
frá sukkaturbo
Sæll Kári ég þakka fyrir hvað viltu fá fyrir það.Væri gott að heyra í þér í síma ef þú hefur tíma guðni gsm 8925426.
Setti olíuverkið í sem ég fékk í gær þetta drulluga. Bar búinn að losa það og hreinsa að utan og gera það sem ég gat svona utan frá. Fékk bílinn í gang en hann hökti og hristist og ekki var hægt að gefa honum inn þó svo að ég djöflaðist á inngjöfinni. Purfaði að berja létt í ólíuverkið og var þá hægt að gefa aðeins inn eða upp á hláfagjöf. En vélinn gekk illa en samt á öllum. Það er og ljóst að þetta olíuverk er búið að standa of lengi og er með takmarkaða virkni. Yfirfallið frá því var mórautt og ryðlitað og fyllti ég tveggja lítra Coke flösku af þessu skólpi og er nokkuð öruggt að þetta er orðið illa farið af stöðu. Spurnig hvort ég skemmi spýssana með svon ryðolíu.

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 23.jan 2015, 17:59
frá Startarinn
Því miður þá skemmast dýsurnar í spíssunum nánast samstundis við að fá drullu inná sig

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 23.jan 2015, 18:33
frá sukkaturbo
Sæll Ástmar og andskotinn nú kaupi ég kassa af handsprengjum. Fyrst biluð vél svo ónýtt olíverk og svo annað ónýtt óliuverk og svo ónýtir spýssar eða skvísur og örugglega hand ónýtar hlandsprengjur. Allt á móti manni núna.Farinn að borða er með læri í ofninum það hlítur að vera brunnið svo allt sé í takt.

Re: Bella brjál

Posted: 23.jan 2015, 21:20
frá Rodeo
Er þessi rússi nokkuð ættaður úr Mývatnssveit? sat í einum akkúrat svona sem krakkí sveit fyrir að verða þrjátíu árum.

Re: Bella brjál

Posted: 23.jan 2015, 23:54
frá sukkaturbo
Búinn að vera á Sauðanesi við siglufjörði í 30 ár eða lengur

Re: Bella BLÁSIN á verki ekki hætt

Posted: 24.jan 2015, 00:06
frá thor_man
sukkaturbo wrote:Þarna sést næsta verkefni sem verið er að byrja á en þetta er gamall Rússi sem vinur minn á.

Vonandi fær hann að halda sér sem mest upphaflegur. Lítið af þeim þannig til hér.

Re: Bella brjál

Posted: 24.jan 2015, 14:32
frá sukkaturbo
Sælir félagar meðan beðið er eftir þriðja olíuverkinu fór ég í að koma vatnskassa í bílinn. Fyrir valinu var vatnskassi frá 2,9 V-6 ford bensínvél sem til var í haugnum. Veit ekki hvort hann dugar en hann verður þarna þangað til vélin er farinn að ganga sómasamlega.Smíðaði festingar úr 3x3mm vinklum og með festingum aftur í hvalbak fyrir væntanlega lengingu og pinnafestingar fyrir vélarlokið sem verður á lömum að framan.Svona eins og uppsetninginn er á myndunum á dag þá vantar 40 cm lengingu. Á eftir að koma húsinu 10 cm fram og vélarlokinu aftur um 5 cm. Get ekki klárað þetta fyrr en vélinn er kominn á rétt ról eða önnur vél í ef þessi fer ekki í gang næstu dagana. Er að fá þriðja olíverkiða á þriðjudaginn og spýssa.

Re: Bella brjál

Posted: 25.jan 2015, 08:59
frá sukkaturbo
Sælir félagar er loksins kominn með vél í Bellu sem vikar og hægt að lemja hana ef hún hætir að virka
https://www.facebook.com/video.php?v=10152561525060348

Re: Bella í stuði

Posted: 25.jan 2015, 18:06
frá sukkaturbo
Sælir félagar léttskýjað yfir karlinum í dag.Góður maður í Varmahlíð hann Kári Gunnarsson hringdi í mig og kvaðst eiga olíuverk frá 1996 diselvél og ef ég hefði áhuga mætti ég eiga það hvorki meira né minna. Renndi í Varmahlíð og náði í olíuverkið og setti smá hluti utan á það sem vantaði enda nóg til af hinu og þessu dóti úr olíuverka safni Kjarvals.Byrjaði 15.30 að rífa og skipta um og kl 16,45 fór Bella í gang og malaði eins og köttur fullur af mat. Kári fær mikklar þakkir frá mér fyrir þetta góðverk.Svo nú fer smíðin af stað á fullum krafti.Svo félagar þakka stuðninginn og ráðin og peppið áfram Bella.

Re: Bella í stuði

Posted: 25.jan 2015, 18:24
frá olafur f johannsson
Frábært alltaf gaman að fylgjast með hvað er í gangi á sigló :)

Re: Bella í stuði

Posted: 25.jan 2015, 18:51
frá Járni
Frábært, ég held hreinlega að það sé léttara yfir öllum nú þegar vélin er loksins komin í gang.

Fullt stím áfram!

Re: Bella í stuði

Posted: 25.jan 2015, 19:52
frá sukkaturbo
Sæll Gísli minn,já þetta er sko gert af tilfinningu og allt lagt í þetta líf og sál. Þannig verða góðir fjallajappar til held ég.

Re: Bella í stuði

Posted: 25.jan 2015, 21:14
frá Stebbi
Þessi þráður sýnir bara og sannar hversu mikið samfélagsmein þessar litlu díselvélar eru.

Re: Bella í stuði

Posted: 26.jan 2015, 13:21
frá Bubbi byggir
Til lukku með þetta frændi, vélin loks farin að ganga, ég er ekki frá því að ég hafi verið farinn að hökta líka eins og vélin, svo mikill var spenningurinn !!

Re: Bella í stuði

Posted: 26.jan 2015, 17:20
frá sukkaturbo
Sæll frændi já þetta reyndi verulega á þolinmæðina skal ég segja þér. En þetta hafðist á þriðja olíverkinu.Er orðin snillingur í að tíma inn 2,4 disel og skipta um olíverk sirka 1,5 tíma við þessar aðstæður sem ég er með þetta í.

Re: Bella í stuði

Posted: 27.jan 2015, 15:39
frá Bubbi byggir
Það var aldrei spurningin um hvort, heldur bara hvenær hún færi í gang ;)

Re: Bella í stuði

Posted: 27.jan 2015, 15:55
frá sukkaturbo
Sælir félagar sauð nokkra kjamma í tilefni þess að vélardruslan fór loksins í gang og bauð skúradýrunum vinum mínum upp á svið ( ekki leiksvið)og svo lædist 60 ára afmælisdagurinn með svo tvær flugur í einu höggi.

Í Himnaríki, heldur til,
hjá allskyns, gömlum jeppum.
Seinna sköflum, gera skil,
á slettum gadda, keðjum.

Re: Bella í stuði

Posted: 27.jan 2015, 17:52
frá Lada
Sextugur? Þú hlýtur að hafa talið einhver árin tvisvar.
Til hamingju með afmælið.
Kv.
Ásgeir

Re: Bella í stuði

Posted: 04.feb 2015, 16:14
frá sukkaturbo
Sælir félagar þar sem farið er að halla í sjötugt þá dregur aðeins úr vinnuhraðanum. En gerði við gírkassapúðan skrúfaði hann í sundir og límdi gúmíin aftur á sinn stað og skrúfaði hann svo saman.Svona gírkassapúði kostar 20.000 kominn á sigló eða rúmlega 17.000 hjá Toyota. Gerði líka við stuðpúðana á afturfjöðrunum. Vantar enn neðri kúpplings dæluna en hún kostar ný 13600 og er ekki til í landinu. Nú svo er spurning að gera við þá fjaðraklemmu sem ég sleit en stykkið af þeim kostar 3600. eða 5000 komin á sigló. Ég set þessi verð inn að gamni svo menn geti áttað sig á hversu fljótt er að koma í 100.000 kallinn í svona uppgerð ef allt er keypt nýtt sem bilar. Það er alveg hellingur sem er hægt að laga og nota áfram með smá dúlli. Orginal vatnskassinn er kominn í og festur með vinklum á grindina og vatn á allt og engin leki en eitthvað kemur lítill hiti á miðstöðina ennþá örugglega loft á kerfinu.

Re: Bella í stuði

Posted: 07.feb 2015, 16:39
frá sukkaturbo
Sælir jæja loksins kominn upp úr gólfinu. VAr að enda við afturhásinguna og fjaðrir og bremsur og handbremsu alveg endalaus vinna í þessu dóti allt fast og ónýtt en loksins komið í alvöru stand.Nú verður hægt að sitja og standa við restina.Er ekki mjög fimur í gólfæfingum enda kominn 55 ár frá því ég var í fimleikum.

Re: Bella í stuði

Posted: 07.feb 2015, 16:42
frá sukkaturbo
Sæl félagar í morgun var mér aldeilis komið á óvart af fjölskyldu minn konu og börnum tengdasonum og barnabörnum og gæludýrum. Það er ekki oft sem ég verð kjaftstopp og fæ vatn í augun eins og sonur minn blessaður sagði þegar hann var 6 ára en það gerðist í morgun. Þegar ég kom til vinnu minnar í morgun beið mín á gólfinu vafinn með rauðum borða þessi glæsilegi verkfæraskápur frá Sindra Stál og var hann fullur af verkfærum af allskyns gerðum.Er búinn að sitja við kassan og skoða og klappa honum öllum.Því lík gleði og hamingja hjá manni.Takk Takk segi ég.

Re: Bella í stuði

Posted: 07.feb 2015, 16:52
frá Bubbi byggir
Til hamingju með nýju verkfærin frændi, þetta er glæsilegt og kemur örugglega að góðum notum. Það er gott að eiga góða að !!
Kærar kveðjur á Sigló