Síða 1 af 1
6 cyl Cherokiee 2002 er steindauður.
Posted: 21.sep 2014, 14:02
frá olistef
Daginn.
Nú var það þannig að félagi minn var að ferðast á jeppanum mínum um daginn og þá drepur hann á sér. Hann er dreginn á verkstæði þar sem skipt er um kambás-skynjara og kerti. Bíllinn virkar fínt í hálfa viku en fer þá að drepa á sér á akstri. Sirka 10 sinnum á 100 km. Fer þó í gang aftur, þangað til núna. Steindauður.
Sem áður sagði er þetta grand cherokee 2002 model, 6 cyl 4l.
Er málið að fara strax í að skipta um sveifarás-skynjarann?
Einhverjar aðrar hugmyndir eða reynslusögur?
Með fyrirfram þökk fyrir svör - Óli
Re: 6 cyl Cherokiee 2002 model er steindauður.
Posted: 21.sep 2014, 14:31
frá Startarinn
Þetta hljómar eins og sveifarás skynjarinn, benzinn minn lét svipað þegar hann fór hjá mér, spurning samt að lesa af honum fyrst
Re: 6 cyl Cherokiee 2002 model er steindauður.
Posted: 21.sep 2014, 14:54
frá olistef
Já, google bendir á sveifarásskynjarann. Ég ætla að heyra í þeim á verkstæðinu þar sem hann var. Hvað það var sem þeir lásu úr honum þar.
Re: 6 cyl Cherokiee 2002 model er steindauður.
Posted: 21.sep 2014, 15:55
frá Kiddi
Það þarf ekki að vera að bilaður sveifarásskynjari gefi kóða. Það er hugsanlegt að vélartölvan hafi ekki hugmynd um að vélin sé að snúast af því að sveifarásskynjarinn gefur ekki merki og þá hefur hún enga ástæðu til þess að halda að eitthvað sé bilað.
Re: 6 cyl Cherokiee 2002 model er steindauður.
Posted: 21.sep 2014, 21:49
frá lettur
Ath. háspennukefli.
Re: 6 cyl Cherokiee 2002 er steindauður.
Posted: 22.sep 2014, 02:39
frá jeepcj7
Ef þú getur fáðu þá Kjartan í Mosó til að lesa bílinn,hjá mér var þetta svipað og kveikjan var biluð í það skiptið.
Re: 6 cyl Cherokiee 2002 er steindauður.
Posted: 22.sep 2014, 10:54
frá svarti sambo
Sæll,
Ég lenti einu sinni í svipuðu dæmi, með Ford escort. Drap á sér random, og fór svo í gang aftur eftir smá stund. ég man ekki hvort að það var kveikjuheilinn eða háspennukeflið, en mig minnir að það hafi verið kveikjan. Minnir að þetta hafi farið að leiða til jarðar, þegar að það hitnaði.
Re: 6 cyl Cherokiee 2002 er steindauður.
Posted: 27.sep 2014, 12:37
frá olistef
Jæja, málið er leyst.
Eftir smá youtube komst ég að því að hægt er að fá bilanakóða á displayið í mælaborðinu með því að svissa á þrisvar í röð. Fékk ég kóða á cam, crank og ignition dwell eithvað. Símtal við einstaklega hjálpsaman og kurteisan viðgerðarmann hjá Bíljöfur leiddi mig í sannleik um að þetta væri sveifarásskynjarinn og hefði trúlega verið hann frá upphafi.
Allavegana er nýr crank skynjari kominn í og bíllinn í gang. (En ljóti viðbjóðurinn að komast að þessum skynjara)
Þakka þeim sem nenntu að aðstoða mig.