Síða 2 af 4

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 29.nóv 2014, 20:21
frá Bubbi byggir
20141129_195852.jpg
20141129_195852.jpg (72.23 KiB) Viewed 10211 times
Keirði í Hvalfjarðarsveit vegna veðurspár, var með tjaldvagnin úti, báta og fleira sem þarf að ganga frá fyrir veðurofsan sem er væntanlegur. Notaði tækifærið og grunnaði og málaði veltigrindina á gamla. aldrei að vita nema eitthvað fleira gerist. Ég þarf að riðbæta aðra hurðina og gaflin að aftan, en sjáum til. Það er ekki skemmtilegt að eiga þetta eftir þar sem riðbætingar eru ekki mitt skemmtilegasta verk :o(

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 30.nóv 2014, 14:12
frá Bubbi byggir
Búið að máta, fittar fínt.... Óvíst með frekari vinnu í bili þar sem hryggurinn á mér gaf sig við að draga tjaldvagninn í hús!!! andsk::::: ræfill orðinn!!!
20141130_135849.jpg
20141130_135849.jpg (100.16 KiB) Viewed 9980 times

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 30.nóv 2014, 15:39
frá sukkaturbo
Sæll frændi við ættum þá að geta keppt í ræfilshætti. Komdu bílnum norður ég skal klára hann fyrir þig.

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 30.nóv 2014, 16:29
frá Bubbi byggir
Sæll frændi,,við verðum flottir saman, báðir skakkir og skældir, ég hef nú allveg hugsað til þín með að klára bílinn. Ég er svo vitlaus í véladótinu, langar ofboðslega til að setja áttuna í hann og helst sjálfskiptingu ( fyrir frúnna ) nú þarf ég að finna orginal framstóla í hann, stólarnir sem voru í honum eru hundljótir og lélegir og það er sennilega það eina sem ekki er til hjá mér í þessa bíla

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 02.des 2014, 00:24
frá magnum62
Flottur hjá tér.

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 02.des 2014, 13:02
frá sukkaturbo
finnum stóla úr Bronco II

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 02.des 2014, 13:10
frá Bubbi byggir
Það er allveg athugandi, eru þeir stólar ekki fínir??

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 02.des 2014, 19:15
frá Big Red
á að ég held 2 rauða stóla úr Bronco 2. Ef þeir eru enn til staðar þyrfti að athuga það en þeir eiga að vera uppá lofti hjá barnsmóðurinni.

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 02.des 2014, 19:34
frá Bubbi byggir
Endilega athugaðu fyrir mig, mátt senda mér myndir á artser@simnet.is ef þú finnur þá, vantar tilfinnanlega góða stóla í bílinn. Heyri vonandi frá þér fljótlega, ef þú vilt hringja er síminn 861-3629
Kv Hjalti

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 05.des 2014, 20:48
frá Big Red
Sæll þeir voru því miður ekki til staðar lengur.

EN ég á góða stóla úr Mazda 626. Svona semí sportstóla með smá hliðarstuðning og fíneríi. Eru svartir ef þú hefur áhuga á þeim.

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 05.des 2014, 21:14
frá sukkaturbo
frændi það eru finir stólar smá frekja áttu myndir af þeim og verðhugmynd

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 05.des 2014, 22:33
frá svarti sambo
Á til ljósbláa stóla úr Cherokee, mátt eiga þá, ef þú vilt. Áður en að ég hendi þeim.

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 06.des 2014, 13:15
frá Bubbi byggir
Held að ljósblátt gangi ekki með litunum á bílnum,, en takk samt,

Ég hefði áhuga á að skoða svörtu Mözdu stólana frá Big Red,
Ég er núna búinn að klæða bílinn að innan, allveg í hólf og gólf, meira vesenið en gaman þegar þetta er búið, myndir seinna þar sem jóla stúss gengur fyrir núna í þessari bæjar ferrð.

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 06.des 2014, 22:16
frá Big Red
Já hringdu bara í mig getur alveg fengið þá :)

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 2

Posted: 07.des 2014, 22:33
frá Bubbi byggir
Áttu eitthvað númmer til að hringja í ???

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 3

Posted: 07.des 2014, 22:43
frá Bubbi byggir
Smá til upplýsingar !! Bíllinn fékk aðeins að sjá snjóinn í dag, svo eru myndir af því hvernig hann er að innan, en ég smíðaði í hann klæðninguna að innan og teppalagði.
IMG_5314.JPG
IMG_5314.JPG (117.73 KiB) Viewed 5163 times
IMG_5315.JPG
IMG_5315.JPG (111.89 KiB) Viewed 5163 times
IMG_5308.JPG
IMG_5308.JPG (117.34 KiB) Viewed 5163 times
IMG_5313.JPG
IMG_5313.JPG (87.63 KiB) Viewed 5163 times
IMG_5312.JPG
IMG_5312.JPG (94.91 KiB) Viewed 5163 times
IMG_5311.JPG
IMG_5311.JPG (139.28 KiB) Viewed 5163 times

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 3

Posted: 08.des 2014, 09:01
frá Big Red
Er í undirskriftinni en annars 7872159

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 3

Posted: 08.des 2014, 11:49
frá Bubbi byggir
Ég sá náttúrulega ekkert númmerið þar ;) en takk fyrir þetta ég verð í sambandi....

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 4

Posted: 09.des 2014, 19:46
frá Bubbi byggir
Þá er trésmiðurinn kominn í að riðbæta hurðarnar á bílinn, það er víst best að látamyndirnar bara kjafta frá "fæst orð bera minnsta ábyrgð" ..
IMG_5325.JPG
IMG_5325.JPG (164.8 KiB) Viewed 5060 times
IMG_5329.JPG
IMG_5329.JPG (129.78 KiB) Viewed 5060 times
IMG_5330.JPG
IMG_5330.JPG (135.65 KiB) Viewed 5060 times
IMG_5331.JPG
IMG_5331.JPG (151.43 KiB) Viewed 5060 times
IMG_5318.JPG
IMG_5318.JPG (130.06 KiB) Viewed 5060 times
IMG_5319.JPG
IMG_5319.JPG (157.54 KiB) Viewed 5060 times
IMG_5320.JPG
IMG_5320.JPG (133.35 KiB) Viewed 5060 times
IMG_5321.JPG
IMG_5321.JPG (129.03 KiB) Viewed 5060 times

Re: Gamli Bronco, uppfært myndir nr 4

Posted: 10.des 2014, 21:18
frá Bubbi byggir
Botninn er í Borgarfirði!!! á maður að nenna þessu, eiginlega allveg ónýtt, en sjáum til hvað nennirinn leifir !!
IMG_5335.JPG
IMG_5335.JPG (119.62 KiB) Viewed 5004 times
IMG_5334.JPG
IMG_5334.JPG (148.65 KiB) Viewed 5004 times
IMG_5333.JPG
IMG_5333.JPG (116.04 KiB) Viewed 5004 times
IMG_5332.JPG
IMG_5332.JPG (145.81 KiB) Viewed 5004 times

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 17.des 2014, 21:12
frá Bubbi byggir
Nú er sá gamli með 6 cl línu sem mig langar að skipta um í eitthvað stærra. Ég á til 302 vél sem er allveg strýpuð og kjörin til breitinga, en hvað er hægt að gera við þessar vélar til að gera þær sprækari, þær eru nú ekki þekktar fyrir mikið afl. Stóra spurningin er síðan, þola þessar vélar eitthvað tjúnn???? hverjir eru færastir í svona vinnu??
Einn fáfróður..

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 17.des 2014, 23:20
frá jeepcj7
302 þolir tjúnn bara nokkuð vel fáar vélar sounda betur en þetta er ekki stór vél miðað við 8 cyl þannig að það er margt sprækara til.Slit lítil vél nett portun á heddum(þarf aðallega að laga steypugalla í þeim),volgur ás(260-280) flækjur og góður blöndungur(ca.600 cfm)gera alveg sæmilega hluti en kostar allt slatta og er talsverð vinna en alveg hægt að gera sjálfur eftir uppskrift.

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 18.des 2014, 08:31
frá jongud
jeepcj7 wrote:302 þolir tjúnn bara nokkuð vel fáar vélar sounda betur en þetta er ekki stór vél miðað við 8 cyl þannig að það er margt sprækara til.Slit lítil vél nett portun á heddum(þarf aðallega að laga steypugalla í þeim),volgur ás(260-280) flækjur og góður blöndungur(ca.600 cfm)gera alveg sæmilega hluti en kostar allt slatta og er talsverð vinna en alveg hægt að gera sjálfur eftir uppskrift.


Ef það á að skipta um vél er um að gera að sleppa tveim vandamálum sem hrjáðu V8 vélar lengi. Og ekki skipta í vél með hönnun frá 1950!
Veldu einhverja nýrri, með beinni innspýtingu, og háspennukeflin ofaná eða stutt frá kertunum. Þannig losnar þú við gutlið í klósettinu í hliðarhalla og gangurinn verður betri, eyðsla minni, og þú losnar líka við vesen með kertaþræði og kveikjulok.

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 18.des 2014, 13:04
frá Bubbi byggir
Takk fyrir þetta strákar, greinilega misjafnar skoðnir á þessu, kannski sem betur fer :o)
Veit af því að það hafa verið sett hedd af 289 vélunum á 302 vélina og jafnvel 351W small block líka, eitthvað átt við rocker armana ??? hvað gerir þessi breiting fyrir vélina? eykur þetta aflið að einhverju marki?? virðist einföld aðgerð fyrir viðvaninga eins og mig!

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 18.des 2014, 13:40
frá jeepcj7
Munurinn á v8 í dag og 1950 er reyndar ekki mikill aðallega komin innspíting,meira ál notað með tölvustýringu á draslið.
Þetta er síðan bara spurning um hvað má kosta í þetta það er ekki verra að vera með nyjan innspíttan mótor en þá ertu að tala um 1-2 millur lágmark og ef þú velur notaðan nýlegan mótor ertu líklega að tala um 500-milljón með skiptingu íkomið og veist jafnvel lítið með ástand getur verið meira keyrt en gamla 302 samt fínt mál ef það á að eyða smá í dæmið.En ef þú ert að spá í gamla 302 þá ættir þú að geta sloppið með 2-300 kall leikandi með fínan mótor sem líklega eyðir 2-3 lítrum meira og skilar örlítið færri hrossum en kostar talsvert minna og virkar bara vel.
Með 289 heddin held ég að það sé ekki sniðugt þar eru minni ventlar og verra flæði,menn voru að nota þetta í denn til að ná upp þjöppu með minna sprengirými en allt annað er verra,302 heddin eru víst ekki svo slæm ef þau eru aðeins löguð til aðallega steypu galli sem nánast lokar pústportunum sem þarf að fræsa burtu.

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 18.des 2014, 14:06
frá Bubbi byggir
Það er nú ekki meiningin að setja í þetta einhverjar háar fjárhæðir, aðalega að nota það sem til er. Ég á 2 302 mótora og annan þeirra fékk ég sem ný upptekinn, en sá mótor er allveg strípaður, vantar allt utan á hann. Minn tryggasti vinur gaf mér síðan c6 sjálfskiptingu um daginn sem ég á eftir að sækja til hans og úr þessu langar mig að búa til eitthvað skemmtilegt í bílinn, svo eru til flækjur á þetta sem að sjálfsögðu verða notaðar.

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 18.des 2014, 14:56
frá tommi3520
Ég myndi bara sippa 302 ofan í, á að vera hægt að finna upplýsingar á netinu og allstaðar hvernig á að taka svona mótora og gera það sem þú vilt við þá. verður líka skemmtilegra fyrir vikið að heyra í honum þegar þú ert sjálfur búinn að gera og græja!

En já ég myndi skipta um höfuðlegur og stimpilstangalegur, setja hentugan knastás, millihedd og blöndung, og ekki er verra að laga pústportin á heddunum eins og talað er um og flækjurnar! þá er eitthvað komið!

síðan ef þú vilt meira power þá eru það bara álhedd og alltaf gott að uppfæra kveikjukerfið líka! reyndar má uppfæra kveikjukerið bara strax alltaf gott að hafa góðan neista!

En ég hef ekki mikla reynslu af verk hliðinni af svona breytingum, en þetta er það sem maður hefur heyrt í gegnum tíðina bara!

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 18.des 2014, 17:13
frá juddi
Mundi skoða að nota 300 línu sexu með 4 holfa tor flækjum og aðeins volgan ás þetta er mótor sem togar endalaust algjör sniuld í jeppa auk þess sem engin bíst við neinu af línu sexu

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 18.des 2014, 18:27
frá Bubbi byggir
Þetta er einn möguleiki en því miður er 300 lína ekki til hjá mér, held að sú sem er í bílnum sé 200
en þessi aðgerð, er hún ekki sú sama og á 302 vélinni ef farið verður í heitan ás og stimpla nema sú vél er til, svo það verður víst að vinna með það í svona low budget verkefni, nema einhver eigi 351W og vill skipta á 302 þá þarf ekkert að vera að reyna að tjúnna eitthvað :) dem hvað maður er vitlaus í þessum vélamálum, verð að reyna að læra eitthvað í þessu!!!

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 19.des 2014, 00:26
frá oskargj
Hjalti ef þú ætlar í 302 myndi ég reyna að nálgast vél framleidda fyrir bensínkreppuna ca 1970 eða eldra mikill munur á afli og eyðslu

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 19.des 2014, 09:13
frá Bubbi byggir
Ég var búinn að heyra eitthvað um þetta, að vélunum hafi verið breitt til að gera þær eiðslugrenri, að 302 vél í 74 bíl skilaði ekki nema 145 hp sem er ekki mikið af v8 vél. Veit bara ekki hvað þarf að gera til að snúa þessu til baka. Samkvæmt mínum kokkabókum ætti vélin að vera 220 hp óbreitt sem væri bara fínt fyrir bílin. það hefur verið nefndur hér steipugalli í heddi að það þurfi að fræsa út til að opna útblásturinn, hvort það hfi verið gert til að minka afl og eiðslu??? ásamt einhverju öðru?? kannski veit einhver hér hvað var gert. Svo hver er þessi munur á t.d 66 árg og 74 árg af 302 svo hægt sé að breita til baka???

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 19.des 2014, 11:25
frá Kiddi
Þetta með hestöflin er nú svolítil mýta. Hestaflamælingar voru framkvæmdar með öðrum hætti fyrir 1972. Á vélunum voru færri aukahlutir sem taka afl en eru notaðir í bílnum svo sem alternator, stýrisdæla, lofthreinsari og fleira.
Sjálfur held ég að tölurnar eftir 1972 gefi raunsærri mynd af raunverulegu afli þessara óbreyttu gömlu V8 véla :-)

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 24.des 2014, 14:43
frá Bubbi byggir
Kæru spjallverjar, óska ykkur Gleðilegra Jóla og farsældar á nýju ári, takk fyrir frábæran spjallþráð og vonandi verður veturinn á komandi ári hagstæður fyrir jeppadellumenn.
Sjáumst hér á nýju ári þegar framkvæmdir hefjast á ný.

Re: Gamli Bronco, vélapæling til ykkar !!

Posted: 24.des 2014, 14:47
frá Bubbi byggir
P.S þeir sem hafa áhuga að sjá hina hliðina á mér geta skoðað heimasíðuna mína en slóðin þangað er tile.is :) þar er mitt helsta áhugamál og mest af mínum frítíma fer í það rugl :)

Re: Gamli Bronco, Jólakveðja

Posted: 24.des 2014, 17:27
frá sukkaturbo
Sæll frændi þú ert ekki við eina fjölina feldur. Hagleiksmaður á járn og tré. Svo jólin til þín og þinna

Re: Gamli Bronco,

Posted: 30.des 2014, 14:48
frá Bubbi byggir
Nú er á dagskrá að reyna að komast í bílinn eitthvað áður en nýtt vinnu ár hefst. Langar að gera bílinn ferðafæran þar sem mér hefur boðist húsaskjól fyrir gripinn hér á Reykhólum. Það verður öllu þægilegra að hafa hann hér heima við, svo kannsli klárast bíllinn einhvertíma. Það væri flott að hafa hann sprækan í vetur, svona til að prufa allavega, en sjáum hvað verður :) Vonandi heldur skrokkurinn, er orðinn svo anskoti lélegur þó aldurinn þvælist ekki fyrir manni :)

Re: Gamli Bronco,

Posted: 03.jan 2015, 17:29
frá Bubbi byggir
Ég hafði tekið eftir því að það lak aðeins með húsinu yfir vatnslásnum þega sett var í gang, opnaði það til að skipta um pakningu. Það þarf svolítið meira til en það, allt stíflað í einhverskonar útfellingar-frostlögs geli eða eitthvað annað verra. Þó er frostlögurinn sem eftir sat frremst í blokkini eðlilegur og ekki að sjá að það sé ekki í lagi þar.
20150103_133857.jpg
20150103_133857.jpg (179.53 KiB) Viewed 4575 times

Skiptihólkurinn í stýristúbuni kolfastur, gekk bara í annan og þriðja, náði stönginni ekki að mér til að setja í fyrsta og bakk. Eftir miklar æfingar var stýristúban rifin úr og verður sett önnur í staðinn. Ef nennir leifir verður sett vökvastýri í bílinn í leiðinni.
20150103_133803.jpg
20150103_133803.jpg (156.86 KiB) Viewed 4575 times

20150103_133816.jpg
20150103_133816.jpg (127.89 KiB) Viewed 4575 times

Hurðarnar bíða spenntar eftir því að verða hengdar á bílinn.
20150103_133749.jpg
20150103_133749.jpg (104.92 KiB) Viewed 4575 times

Re: Gamli Bronco,

Posted: 21.jan 2015, 00:10
frá Valdi B
sæll, hvernig gengur gamli bronco ? er afar spenntur að sjá hann tilbúinn og kominn á eitthverja stærri dekkjagarma :) hver stórt verður undir honum ? 35? 38?

gangi þér vel annars ég þyrfti að gefa mér spark í rassgatið með minn 74 :/

Re: Gamli Bronco,

Posted: 22.jan 2015, 16:13
frá Bubbi byggir
Sæll Valdi, þetta er að taka alltof langan tíma allt saman en smá gerist þó. Nú eru hurðarnar komnar á svo boddíið er klárt fyrir utan afturhlera. Næst er að setja stýristúbuna í aftur, einhver smá rafmagnsvinna við miðstöð þá ætti hann að vera klár í skoðun.

Re: Gamli Bronco,

Posted: 27.jan 2015, 18:35
frá Valdi B
já flott er gangi þér vel í skoðun :)