Síða 1 af 1
Terano/vantar varahlut
Posted: 31.júl 2014, 11:50
frá sukkaturbo
Sælir félagar.Vantar smá aðstoð við að finna varahlut í Terrano 2,7 disel sjálfskiptan.Félagar mínir voru að skipta um vél í Terrano sjálfskiptum 2,7 disel.Þegar startað var snérist stararinn með og fylgdu því skruðningar og læti.Svo virðist sem bendixinn gangi aðeins inn á startkransinn og snúist með.Þá var allt rifið í sundur og finnst mönnum að millihryngurinn sem er á milli flexplötunnar og sveifaráss sé ekki í réttri þykkt eða það vanti annan hring undirlegg eitthvað þykkra en sá sem er nú á milli.Nú er spurning er einhver sem hefur lent í þessu eða kannast við svona bilun. Þessi hringur er ekki til en hægt er að sérpanta hann fyrir 30.000 skilst mér.Ef einhver á svona og getur misst þessa skinnu væri gott að fá mail um það eða hringingu. Bíllinn er staðsettur á bílaverkstæðinu Múlatind og stendur á grifju þar og það er allt stopp.Kveðja Guðni gsm 8925426 og mail
gudnisv@simnet.isPS.hvort Elli Ofur kannist við þetta
Re: Terano/vantar varahlut
Posted: 31.júl 2014, 12:16
frá svarti sambo
Kannast ekki við þetta mál, en er ekki hægt að setja millilegg á startarann sjálfann. Sennilega einfaldara, ef að svinghjólið fer of langt uppá svéifarásinn. Hvað með stirðleika í bendens, vegna slits í fóðringum. Fer ekki nægilega langt til baka.
Re: Terano/vantar varahlut
Posted: 31.júl 2014, 18:59
frá sukkaturbo
Sæll það er búið að skoða þetta í bak og fyrir minnst fjórir hundvanir bifvélavirkjar þarna á Múlatindi með samtals 150 ára reynslu flottir strákar. Það er komið að því að smíða svona millilegg en mér datt ú hug að spyrjast fyrir fyrst.Takk samt kveðja guðni
Re: Terano/vantar varahlut
Posted: 31.júl 2014, 21:23
frá olei
Hér eru "skinnur" við flexplötuna í sjálfskiptum Terrano 2 1999 árgerð 2.7 diesel.
Sú þynnri er aftan við plötuna, sú þykkari er milli plötunnar og sveifarássins og gegnir greinilega hlutverki stýringar og spacer.
Hún er
5mm þykk í botninn og hún fær stýringu upp á endann á sveifarásnum og stýrir síðan plötunni.
Sé þessi skinna ekki til staðar er platan augljóslega 5mm of framarlega og ennfremur er þá undir hælinn lagt hvort að platan sé í réttri miðjustýringu.
Hér er hliðin sem liggur að sveifarás.

- IMGP1177.JPG (72.11 KiB) Viewed 1150 times
Þessi snýr að plötunni.

- IMGP1178.JPG (68.64 KiB) Viewed 1150 times
Stýringin inn í plötuna er
30mm í þvermál og
7,5mm á hæð.

- IMGP1179.JPG (91.41 KiB) Viewed 1150 times
Heildarþykktin 9,65 kraginn er um 4.65.

- IMGP1182.JPG (83.97 KiB) Viewed 1150 times

- IMGP1181.JPG (87.57 KiB) Viewed 1150 times

- IMGP1180.JPG (104.84 KiB) Viewed 1150 times
Þessi skinna er á Selfossi og ég er ekki að fara að nota hana alveg á næstunni, en ég þarf hana fyrir haustið.
Re: Terano/vantar varahlut
Posted: 31.júl 2014, 21:44
frá jongud
Ef platan er 5mm of framarlega er einnig hætta á því að converterinn í skiptingunni sé líka of framarlega og sé ekki með með nógu mikið grip á öllum rillunum.
Re: Terano/vantar varahlut
Posted: 31.júl 2014, 22:53
frá ellisnorra
Ja ekki koma menn að tómum brunninum hérna á jeppaspjallinu, það er sko á hreinu. Þetta er svo æðislegt :)
Re: Terano/vantar varahlut
Posted: 01.aug 2014, 04:24
frá grimur
Ég vedð nú að leggja inn hrós fyrir sérstaklega vandað innlegg, nákvæm lýsing, myndir í besta klassa og málið leyst.
Flott dæmi!
Re: Terano/vantar varahlut
Posted: 01.aug 2014, 07:13
frá sukkaturbo
Sælir strákar. Óli þetta er meiriháttar flott upp sett hjá þér og mikið takk. Fer með þessar upplýsingar á Ólafsfjörð á Múlatind og sýni þeim þetta. Ég vissi það en fæ það enn staðfest að þessi síða Jeppaspjallið er á heimsmælikvarða þegar kemur að lausn einhverra vandamála og ef einhverjum vantar aðstoð allir reiðubúnir til að gera sitt besta fyrir félagan.kveðja guðni
Re: Terano/vantar varahlut
Posted: 01.aug 2014, 16:28
frá sukkaturbo
Sælir það er kominn varahlutur takk fyrir félagar. kveðja guðni