Síða 1 af 1

dana 35

Posted: 18.júl 2014, 18:28
frá heidar69
Er með jeppa í láni það þarf að skipta um öxul í dana 35 með ARB loftlás... er það eithvað öðrvísi en venjulega?, losa pinna og taka splitti?

Re: dana 35

Posted: 18.júl 2014, 19:23
frá grimur
Samkvæmt viðgerðabók um JEEP sem ég blaðaði nýlega í, þá eru C-splitti í yngri gerðum af D35, allavega á öðrum öxlinum.

Sel það svosem ekki dýrar en ég keypti það.

Re: dana 35

Posted: 19.júl 2014, 07:58
frá heidar69
Skist að billin sé með splitti orginal... það er búið að setja i hann ARB ... ætli maður verði ekki bara að rifa þetta i sundur í von og óvon ... Það eru öxlar í skottinnu,orginal öxlar....

Re: dana 35

Posted: 19.júl 2014, 16:28
frá jongud
Það eru til sérstakar ARB-læsingar fyrir C-splittaða öxla. Gæti verið einhver furðuleg seremonía til að komast að splittunum.

Re: dana 35

Posted: 19.júl 2014, 21:03
frá olei
ARB fyrir C-splitti t.d í 12 bolta GM og 8,8" Ford voru með 3 millihjólum og stóreflis gat í læsingarhúsinu til að athafna sig með splittin. Það var ekkert tiltökumál að skipta um öxla í því. Dana 35 þekki ég ekki.

Skoðaðu læsinguna vandlega, hvort að öxlarnir sem millihjólin leika á séu ekki alveg örugglega fastir og á sínum stað. Það kemur fyrir að millihjólin rífa sig fasta á boltana og þá brotna splittin sem halda þeim og svo losnar um þetta aftur og þá skríða öxlarnir út úr draslinu og fara að narta í pinion með tilheyrandi skemmtilegheitum.

Re: dana 35

Posted: 20.júl 2014, 08:21
frá jongud
Hérna er mynd af þessu;
Það þarf greinilega að fjarlægja millihjólapinnan (nr 3) til að byrja á þessu. Athugaðu kambinn vel sitthvoru megin við pinan, stundum þarf að taka örlítið úr tönn til að geta rennt honum í og úr drifhúsinu, spurning þá hvoru megin það er.

http://www.scribd.com/doc/17151621/ARB-Dana-35-Parts-Manual

Hér eru svo leiðbeiningar um ísetningu;
http://store.arbusa.com/Assets/PDF/RD105_i.pdf

Re: dana 35

Posted: 20.júl 2014, 20:05
frá heidar69
Flott hjá ykkur... Nú veit ég hvernin þetta lítur út... takk