Toyota LC90 1kz-te tjúnn?

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
binnibondi
Innlegg: 2
Skráður: 08.jan 2014, 21:00
Fullt nafn: Brynjar Magnússon

Toyota LC90 1kz-te tjúnn?

Postfrá binnibondi » 14.júl 2014, 16:20

Sælir,
Er með 99 mdl af LC 90 með 1kz-te mótornum.
Hef lengi langað að poppa hann aðeins upp en langar að vera temmilega "safe" og raunsær í þessu.
Hef mikið verið að skoða netið og pæla hvað er best í stöðunni.
,,We know we will never get to much from this power plant" :)

Þessi þráður hérna kom manni soldið á bragðið en mér langar að vita hvort einhverjir hafa reynslu af svona útfærslun hérna heima ? þ.e.a.s ROM/ECU forritun.

http://www.toyotadiesel.com/forums/show ... ned-1kz-te

Helstu grunn atriði fyrir svona poppun er að sjálfsögðu...

Front mount intercooler
Opið púst
Afgashitamælir
Breyting á loftinntaki
Boost controller

En þá kemur smá spurningarflóð til að fara velta fyrir sér.

1. Ætlaði að fara í 3" púst frá bínu en þá stoppaði mig einn af og sagði, afhverju að fara í þriggja tommu alla leið þegar þú ert þegar með 2,25" orginal fyrir. Því ekki að opna þetta orginal dót bara? Góð pæling þarsem aflið er nú ekkert að þvælast fyrir þessum mótorum en gaman væri að sjá hvað menn hafa segja ?

2. Boost controllerinn er að sjálfsögðu kostur en því að vera með fullt af boosti en enga olíu til að brenna, svo las ég einhversstaðar er ECU í bílnum blocki allt ef boostið fer yfir 15 psi ? Er 15 psi ekki bara meira en nóg og hvað er ECU-ið að gera þegar svona boost verður til ?

3. Spill skrúfan á olíuverkinu sagði einhver að væri æðislegt að bæta við um kvart til að fá meiri olíu. Ég prufaði það aðeins og fann jú aðeins mun en ekkert teljandi og skrúfaði því til baka þarsem ég var ekki kominn með EGT mælirinn á þeim tíma.

4. Þeir sem eru með kubb í bílunum sínum, finniði mikin mun eða er þetta bara kast á peningum því nóg kosta þessir kubbar sem ég hef séð ástralana vera selja ?

Þessi linkur sem ég setti að ofan sýnir að dúddinn var að ná 152 hp út við afturhjól og tel ég það nú bara nokkuð gott.

Væri gaman að heyra sögur og finna aðra sem hafa verið að brasa í þessu, nóg er af þessum dollum á landinu :)

Það má einnig athuga það að bíllinn minn er óbreyttur og verður óbreyttur að öllu jafna, þetta er meira hugsað til að auka dráttargetuna.

kv.Binni



User avatar

MattiH
Innlegg: 477
Skráður: 21.jún 2010, 12:29
Fullt nafn: Matthías Hálfdánarson
Bíltegund: LC90

Re: Toyota LC90 1kz-te tjúnn?

Postfrá MattiH » 14.júl 2014, 21:37

Sæll.
Ég veit að þeir hjá SS Gísla eru með nokkra kubba í þessa vél sem þú ættir að fá á góðu verði.
Bjallaðu í Ómar s: 860-5430. Hann veit allt um það mál.

Sjálfur er ég með 3" púst, front mount intercooler og tölvukubb. Mér finnst hann bara vinna mjög fínt. Hef svosem ekki samanburðinn því þetta var í honum þegar ég kaupi hann.
Toyota LC90 41" Irok

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Toyota LC90 1kz-te tjúnn?

Postfrá Stebbi » 14.júl 2014, 23:40

Einhverstaðar las ég að þetta færi ekkert að virka fyrr en það væri komið olíuverk úr 2.8 Pajero í þetta, þá fyrst er hægt að fara gefa þessu olíu að éta.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Toyota LC90 1kz-te tjúnn?

Postfrá ellisnorra » 14.júl 2014, 23:45

Björn Oddson sem er hér á spjallinu, hlýtur að finna hann í gegnum leitina, er að selja fjandi góða kubba. Pabbi fékk kubb hjá honum í 100 krúser 4.2 og bíllinn varð allt annar. Mæli með kauða, kubburinn er á einhverstaðar í kringum 90 þúsund hjá honum ef mig misminnir ekki.

*edit* hér er linkur á auglýsingu frá honum viewtopic.php?f=51&t=24250&start=0
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

aae
Innlegg: 127
Skráður: 27.apr 2010, 22:23
Fullt nafn: Andri Ægisson

Re: Toyota LC90 1kz-te tjúnn?

Postfrá aae » 15.júl 2014, 09:22

Samrás hafa verið að selja kubba í LC90 - Samrás # 5514220


baldur
Innlegg: 159
Skráður: 02.feb 2010, 17:43
Fullt nafn: Baldur Gíslason

Re: Toyota LC90 1kz-te tjúnn?

Postfrá baldur » 21.júl 2014, 14:33

Annað sem ég prófaði nýlega og virðist gefa góða raun er vatns+alkóhól innspíting. Setti svoleiðis á Musso hjá mér og víraði þannig að það komi inn á botngjöf. Virðist þar ná að gefa auka eldsneyti til viðbótar við það sem kemur frá olíuverkinu og er finnanlegur munur á afli. Kannski ekki ósvipað própandæminu sem menn voru sumir að leika sér með í gamla daga nema að alkóhólið er talsvert miklu ódýrara og þægilegra í meðförum en gasið. Þetta hefur þó þann ókost eins og gasið að þarna er auka tankur sem að klárast fljótt ef mikið er verið að gefa í.

User avatar

svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: Toyota LC90 1kz-te tjúnn?

Postfrá svarti sambo » 22.júl 2014, 14:13

baldur wrote:Annað sem ég prófaði nýlega og virðist gefa góða raun er vatns+alkóhól innspíting. Setti svoleiðis á Musso hjá mér og víraði þannig að það komi inn á botngjöf. Virðist þar ná að gefa auka eldsneyti til viðbótar við það sem kemur frá olíuverkinu og er finnanlegur munur á afli. Kannski ekki ósvipað própandæminu sem menn voru sumir að leika sér með í gamla daga nema að alkóhólið er talsvert miklu ódýrara og þægilegra í meðförum en gasið. Þetta hefur þó þann ókost eins og gasið að þarna er auka tankur sem að klárast fljótt ef mikið er verið að gefa í.


Ertu þá líka búinn að finna löglega ástæðu, til að vera með eimingartæki í skúrnum. Og verið með heimilisiðnað sem auka búgrein.
Fer það á þrjóskunni


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 12 gestir