Tjakkur wrote:-Hjalti- wrote:ssjo wrote:Ég hef fylgst með þessu þráðum um úrhleypibúnað (utanáliggjandi) með áhuga. Ventlakistan og búnaður sem tengist henni er greinilega þungmiðjan í kerfinu, ýmist með handstýrðum rofum eða segullokum og kostnaður í þeim hluta vegur þyngst. Hver eru rökin fyrir því að það sé ekki hægt að komast af með þennan búnað án þess að vera með stýringu á loftþrýstingi fyrir hvert hjól? Hvað mælir gegn því að vera með allar fjórar tengingarnar saman á einni kistu og hafa sama þrýsting í öllum fjórum dekkjunum? Ég hef allavega sjaldan eða aldrei verið að bauka við að hafa mismunandi þrýsting (aftan/framan) og bara hleypt úr dekkjunum niður í sirka sömu tölu allan hringinn. Lát heyra.
ef bíllinn stendur í halla verða þá ekki hjólin sem þyngdin liggur á loftlaus á meðan hin tvöfalda þrýstingin ?
Ef opið er á millri allra dekkja:
-Þá er einnig sami þrýstingur í öllum dekkjum. ;)
-Ef bíllinn er þyngri að aftan þá bælast þau dekk einfaldlega meira en framdekkin en þrýstingurinn er sá sami.
-Sama á við ef bíllinn stendur í halla, -þrýstingur er sá sami í efri og neðri dekkjum en þau neðri bælast auðvitað meira.
Lokað á milli dekkja:
Ef við gefum okkur að rúmmál dekks minnki þegar það bælist þá eykst loftþrýstingur lítillega við það að meiri þungi leggist á dekkið og því ætti þrýstingur að hækka lítillega á neðri dekkin þegar ekið er í hlíðarhalla og ekki er opið á milli dekkja. Að sama skapi ætti loftþrýstingur að minka þegar léttist á efri dekkjunum og þau bælast minna.
Þetta er í sjálfu sér jákvætt en ég veit ekki hvort að þetta séu þær stærðir að þær skipti e-h máli.
þú ert að gleyma að hugsa þetta út frá lítra fjölda, ef eitt dekk lendir á steini á ferð eykst þrýstigurinn í því dekki og það virkar eins og loftpressa inn á öll hin og þá minnkar loftmagnið í þessu eina dekki og steinninn fer í felgu (í dæminu...) sama gerist þegar bílinn hallar, það er sami þrýstingur en fleiri lítrar fara í dekkin sem bílinn hallar ekki á. þá er bara þyngdarkrafturinn að pressa lofti á milli dekkja... þannig hugsa ég það allavega