Síða 1 af 1

Loft á bremsum.

Posted: 02.jún 2014, 16:36
frá MattiH
Sælir.
Er með lc90. Það virðist alltaf koma loft inn á bremsurnar, Kannast menn eitthvað við þetta?
Mig grunar höfuðdæluna, hafa menn verið að laga þær, taka þær upp ?
Kv. Matti

Re: Loft á bremsum.

Posted: 02.jún 2014, 18:12
frá jeepcj7
Gæti verið óþéttur stimpill í einhverri bremsudælunni getur gerst eftir klossa skipti ef stimplarnir eru reknir til baka eftir að hafa verið komnir langt út.

Re: Loft á bremsum.

Posted: 02.jún 2014, 21:57
frá svarti sambo
Getur gerst ef að stimplarnir í bremsudælunum eru orðnir mjög ryðgaðir, eins ef að það eru komnir pollar í stimplana á dælunum.