Síða 1 af 1
langar í 2x4
Posted: 18.maí 2014, 00:15
frá HummerH3
Er með new process 242 heavy duty millikassa. Er með 4x4 og 4x4læstur og 4x4læstur og lár....mín spurning er. Er hægt að breyta 4x4 venjulegum í 2x4? Er bæði að hugsa þetta til að fá minni bensín eyðslu og svo er hann frekar stífur í fullri beigju og fer ílla með framdekkin......mikil þvingun.......læt fylgja með mynd með lesningu sem ég fann af netinu en skil ílla....vonandi veit einnhver lausn á þessu..kveðja Einar
Re: langar í 2x4
Posted: 18.maí 2014, 12:55
frá Kiddi
Í hvernig bíl? Hummer H1?
Re: langar í 2x4
Posted: 18.maí 2014, 13:28
frá Stebbi
Ef ég skil þig rétt þá ertu að spá í því hvort að það sé hægt að breyta þessum Hummer kassa þannig að það sé hægt að taka framdrifið út. Ég er 99% viss um að það er ekki hægt nema að smíða einhver ósköp, fljótlegast væri að fá annan millikassa.
Re: langar í 2x4
Posted: 18.maí 2014, 21:54
frá HummerH3
Takk takk. Grunaði það. Er einhver kassi sem passar beint í staðinn. Verður þá væntanlega að vera rafskiftur. Þetta er í 06 hummer h3
Re: langar í 2x4
Posted: 18.maí 2014, 22:17
frá Stebbi
Reikna með að það sé sami millikassi í Chevrolet/GMC picköppunum sem eru af sömu árgerð með sömu vél.