Síða 1 af 1
Ballansstöng Patrol.
Posted: 06.maí 2014, 21:45
frá Narfi
ég þarf að skifta út fóðringum í ballansstönginni að framan.Þarf hún að vera undir á 35"breyttum Patrol? og hvar er hagstæðast að versla varahluti í þessa bíla t,d stýrisdempara , já og svo er leki á stýrismaskínunni er mikið mál að laga það?
Kveðja af Ströndinni.
Re: Ballansstöng Patrol.
Posted: 06.maí 2014, 23:07
frá Fordinn
Byrjaðu á að aftengja ballans stongina. prófaðu bílinn.... ef þér finnst hann i lagi... rifðu þetta drasl ur og þarft aldrei að hugsa meira um þetta.
Stýrisdempara fékk ég td hja bilabuð benna um daginn fyrir sanngjarnann aur. getur ath stál og stansa líka.
Leki á maskínu...... sennilega þarf bara að taka hana upp og skipta um þéttingar. þekki bara ekki hversu mikið ves það er i patrol.
Re: Ballansstöng Patrol.
Posted: 27.jún 2014, 02:26
frá Hrannifox
Sumir bílar batna til muna að stöngin sé tekin úr, en hvernig er það með í skoðun
Setja þeir ekkert útá ef festingar séu enþá en eingin ballansstöng?
Re: Ballansstöng Patrol.
Posted: 29.jún 2014, 18:51
frá jeepson
Ballansstangir eiga EKKI að vera í jeppum. Þetta á bara heima í malbiks bílum. Ég er með patrol á 38 og 33. Og báðir eru lausir við stangirnar. 38" bíllinn er eins og draumur að keyra. En hinsvegar er 33" bíllinn eitthvað leiðinlegur í stýri. En ég á eftir að skoða það nánar. En það kemur allavega ekki ballansstönginni við. Rífðu þetta úr eins og kom fram og pældu ekkert meira í því.
Re: Ballansstöng Patrol.
Posted: 29.jún 2014, 21:08
frá sukkaturbo
Sæll burtu með stangirnar og allt sem þeim fylgir hef tekið þær úr öllum mínum patrol bílum og þeir hafa bara lagast við það. Það er ekki skylda að hafa þær í en ef þær eru í þarf allt gúmíadótið og endarnir að vera heilt.
Re: Ballansstöng Patrol.
Posted: 01.sep 2014, 14:26
frá trooper
Daginn. Aðeins um stangir..
Hvernig hafa menn leyst þetta rafmagnsdót sem er tengt í stöngina aftari í Y61 bílnum ?
Kemur ekki eitthvað bölvað ljós í mælaborðið ef farið er af stað með síðubítinn góða og draslið klippt í heilu burtu? Þið vitið
kv. Hjalti
Re: Ballansstöng Patrol.
Posted: 01.sep 2014, 18:16
frá TDK
Fékk að "smíða" þannig þegar ég var í BL. Þá var bara tekinn venjulegur endi og hann framlengdur með tein. Man ekki til þess að það hafi verið gert neitt meira.
Re: Ballansstöng Patrol.
Posted: 01.sep 2014, 22:57
frá Sævar Örn
tengi og losunarbúnaðurinn bilar ekki mikið, en kúlan í endanum slitnar auðvitað eins og allt annað í þessu, en þá er bara að skera kúluna af endanum og skera af öðrum ódýrum enda, helst smyrjanlegum og sjóða á búnaðinn
Re: Ballansstöng Patrol.
Posted: 02.sep 2014, 10:07
frá trooper
Já sælir nei ég meinti nú ef þetta er tekið allt þá myndi ég vilja taka rafmagnshlutann líka. Kemur engin villumelding ef hann er tekinn?