Síða 1 af 1

Brettakanntabreyting á Patrol

Posted: 01.maí 2014, 23:05
frá Izan
Sælir.

Ég fór að braska við að breikka brettakantana á pattanum mínum. Ég var búinn að átta mig á að það yrði ekkert gamanmál því að eins og sönnum austfirðingi sæmir eru felgurnar í breiðari kanntinum (þannig lagað). Gallinn við kanntana er að það er enginn lágréttur flötur eða neinn augljós staður til að saga þá í sundur til að bæta inn í án þess að það líti kauðslega út.

Á endanum ákvað ég að prófa að saga þá langsum ca 5cm inn á köntunum og þann hluta sem leggst að bílnum í sundur á efsta pungti svona sirkabát. Svo festi ég fremri hlutann lítillega framar en original og notaði svo spelkur til að halda stóra hlutanum í réttri fjarlægð frá í réttu flútti við hinn. Síðast spelkaði ég aftari bodyhlutann í réttri fjarlægð og flútti við stóra hlutann og stillti allt draslið saman. Núna var raufin orðin T laga og heildarlengd kanntsins orðin eitthvað lengri en upphaflega.

Photo0006.jpg
Byrjaður að spelka kanntinn á sinn stað
Photo0006.jpg (172.2 KiB) Viewed 2014 times


Næst er að fylla upp í gatið og þá hafði ég í huga að prófa aðferð sem youtube kenndi mér og það er að maka þunnu lagi af P40 á smjörpappír og leggja hann yfir gatið og láta harna að mestu áður en pappírinn er fjarlægður og þessi aðferð gafst vel, allavega ennþá.

Photo0010.jpg
Smjörpappírinn notaður við annað en að baka snúða
Photo0010.jpg (125.94 KiB) Viewed 2014 times


Bút og bút í einu og spelkurnar fjarlægðar smám saman og gatið nálgast að vera lokað.

Photo0015.jpg
Sést hvað kannturinn lengdist við þetta
Photo0015.jpg (127.81 KiB) Viewed 2014 times


Svo er næsta skref að snúa kanntinum á hvolf og steypa í gatið með trefjaplasti og styrkja, spartla, slípa og loks sprauta.

Photo0014.jpg
Photo0014.jpg (118.69 KiB) Viewed 2014 times

Photo0018.jpg
Photo0018.jpg (137.8 KiB) Viewed 2014 times

Photo0019.jpg
Photo0019.jpg (126.23 KiB) Viewed 2014 times


Hvernig eru menn að gera þetta annars, ég er alger nýliði í þessu?

Kv Jón Garðar

Re: Brettakanntabreyting á Patrol

Posted: 02.maí 2014, 15:28
frá Ásgeir Þór
Flott að sjá þetta ég ætla einmitt í það sama hjá mér í sumar.

Hér geturu séð hvernig þeir á siglufirði gerðu þetta með því að setja blikkplötu utan á og svo trebba inn í hana : viewtopic.php?f=5&t=17319&start=450

Einnig máttu endilega henda inn þessum youtube link með þessari trebbaaðferð.

Re: Brettakanntabreyting á Patrol

Posted: 05.maí 2014, 19:53
frá Stebbi
Eitt sem ég myndi gera öðruvísi og það er að halda hæðini á ytri brún kanntsins óbreyttri við breikkunina, þá heldurðu hallanum sem er orginal á þeim, en það er kanski bara hægt með því að smíða hann alveg á milli. En stórsniðugt að nota smjörpappírinn svona til að rigga þessu saman og kemur líka flott áferð á samskeytin.