Síða 1 af 1

Toy drifkögglar, litlu vs stóru legurnar.

Posted: 12.nóv 2010, 18:37
frá JonHrafn
Erum í smá brasi við að sameina 2 drifköggla. Vorum með LSD köggul 5,29 að framan, með stærri legunum, úr árgerð 90 og eitthvað hilux.

Keyptum köggul með loftlæsingu, með ónýtum 5,71 hlutföllum. Hliðarlegurnar og pinion legurnar í þessum köggli eru miklu minni, minnir að ég hafi einhverntíman heyrt talað um að 80 og eitthvað kögglarnir væru með minni legur þótt þeir væru jafn stórir.

Ég er búinn að setja 5,29 kambinn upp á læsinguna, er ss að pæla hvort ég geti pressað stóru leguna af 5,29 pinioninum og sett minni leguna í staðin, reikna nú með að þurfa kaupa nýja legu, varla hægt að ná henni heilli af ónýta 5,71 pinjóninum?

Re: Toy drifkögglar, litlu vs stóru legurnar.

Posted: 12.nóv 2010, 19:10
frá jeepcj7
Það eru til afdráttargræjur til að taka legur af td.pinjónum og keisingum mörg verkstæði eiga svoleiðis ég hef komist í svona græjur hjá einu þeirra á akranesi. :o)
Einmitt eitthvað sem ég er að spá í að versla í ameríkuhreppi á næstunni.

Re: Toy drifkögglar, litlu vs stóru legurnar.

Posted: 12.nóv 2010, 22:49
frá Hlynurh
http://gearinstalls.com/ allar upplýsingar hér sem þig vantar
kv Hlynur

Re: Toy drifkögglar, litlu vs stóru legurnar.

Posted: 13.nóv 2010, 20:23
frá JonHrafn
Jahá þessi síða er snilld.