Síða 1 af 1

skúrabras og bílabreitingar

Posted: 26.mar 2014, 20:39
frá biturk
hér ætla ég að smella inn myndum af þeim bílum sem ég er að gera við og breita, ásamt smíða myndum og brasi úr skúrnum

yz250f 2006 sem ég fékk í skiptum við octaviu frá herra cummins, þokkalega sáttur við hjólið þó að það þurfi aðeins að ditta að því aukalega en átti að vera, en það er í góðu lagi því octavian reindist dálítið skrítinn þegar hún var komin á áfangastað og tók uppá ólíklegustu hlutum, mæli með stráknum í viðskiptum, alger heiðursmaður að eiga við og allt gekk eins og í sögu :)

Image
búið að taka mótorinn úr
Image
þegar ég var að ná í það niður í eimskip
Image
mótorinn á leið uppá borð og fara að splitta honum

svona af því að skúrinn minn er alveg heilir 26,6fm þá ákvað ég að parta einn tercel inn í honum, honum var troðið inn með kranabíl og dreginn út svo sömuleiðis...strákurinn minn fylgdist með dolfallinn þegar það var gert
planið var að taka mótorinn og setja í bíl hjá manni sem ég þekki en þar sem hann átti í hann stangarlegur og headpakkningu þá var ákveðið að skipta um það og þegar þar var komið þá var ákveðið að slípa ventla og skipta um allt sem þarf að skipta, meðal annars endaslagslegur og höfuðlegur, þær eru á leiðinni til landsins, meðann ég bíð eftir því þá ákvað ég í leiðindum mínum að pússa og mála hina ýmsu hluti og fer þá oní gamla tercel svo til al uppgerður mótor fyrir utan stimpla, stengur og hringi, allt annað er pússað eða skipt um og málað

Image
á leiðinni út eftir að hafa rifið allt heillegt af
Image
mótorinn kominn úr og hliðiná bílnum
Image
búið að opna
Image
eins gott að maður ákvað að opna, þetta rýrir töluvert olíuflæði
Image
frekar ljótt
Image
olíupannan löguð, pússað niður í bert og zinkhúðuð
Image
blokkin að verða fallegri
Image
zink húðuð og fín


svo er hér feroza sem ég keiri á dags daglega, mig langaði út að leika svo að ég fór og setti hana á 33" dekk sem ég átti og bara eindaldir blikk kantar sem voru á annari rósu sem ég átti, verið að smíða aftaná hana brúsa\skóflu\drullutjakksfestingu og síðann er margt að fara að gerast
setti í hana kraftmagnara og græjur frammí og afturí, setti líka ofboðslega fínan snertiskjá spilara í hana og fleira
er að fara að skipta um mótor í henni, laga ryð fremst á grindinni, setja prófíltengi að framan í leiðinni,drullutjakkslyftipunkta,skipta um rafkerfið eins og það leggur sig í bílnum,mála hann allan upp á nýtt, setja vhf stöð í hann og kannski eitthvað fleira sem manni dettur í hug

Image
komin með úrskurð og kanta á sig
Image
tekur sig vel út með kastarana, þægilegt að það koma original göt þarna í stuðarann fyrir kastara
Image
nýkomnir á, annar þeirra var með ónýtann spegil en ég reddaði því með króm spreyi og það er ekki sjáanlegur munur á lýsingu á þeim
Image
dekkin voru orðin ansi slitin og munstrið alveg glatað, fylltist af snjó og flaut hroðalega upp í krapi svo ég skar þau dálítið
Image
smá breiting

Re: skúrabras og bílabreitingar

Posted: 26.mar 2014, 20:54
frá ellisnorra
Ég setti einusinni 1600 mótor úr carinu II í tercel, það er bolt on dæmi og ekkert vesen. Þvílíkt annar bíll maður og eyðslan datt niður. Man ekki hvort hann heiti 4a eða 4e, allavega 1600 blöndungs carina II, sennilega 90 árgerð. Snýr vitlaust í carinunni en -ll boltagöt passa beint við tercel dótið.

Re: skúrabras og bílabreitingar

Posted: 26.mar 2014, 20:57
frá biturk
elliofur wrote:Ég setti einusinni 1600 mótor úr carinu II í tercel, það er bolt on dæmi og ekkert vesen. Þvílíkt annar bíll maður og eyðslan datt niður. Man ekki hvort hann heiti 4a eða 4e, allavega 1600 blöndungs carina II, sennilega 90 árgerð. Snýr vitlaust í carinunni en -ll boltagöt passa beint við tercel dótið.


mannstu úr hvaða árgerð? var það blöndungs eða innspýtingar? hversu mikið var flækjustig á rafkerfi og lögnum? passaði kúplingshús, kúpling, mótorfestingar og allt?

Re: skúrabras og bílabreitingar

Posted: 26.mar 2014, 22:46
frá ellisnorra
biturk wrote:
elliofur wrote:Ég setti einusinni 1600 mótor úr carinu II í tercel, það er bolt on dæmi og ekkert vesen. Þvílíkt annar bíll maður og eyðslan datt niður. Man ekki hvort hann heiti 4a eða 4e, allavega 1600 blöndungs carina II, sennilega 90 árgerð. Snýr vitlaust í carinunni en -ll boltagöt passa beint við tercel dótið.


mannstu úr hvaða árgerð? var það blöndungs eða innspýtingar? hversu mikið var flækjustig á rafkerfi og lögnum? passaði kúplingshús, kúpling, mótorfestingar og allt?


Jebb sagði allt það áðan, passaði beint. Flækjustigið var jafn mikið og það er á venjulegum blöndungsbílum = engin tölva.
Númerið á bílnum var JH855 sem mótorinn kom úr.

Re: skúrabras og bílabreitingar

Posted: 27.mar 2014, 09:17
frá jongud
Nú er minnið að svíkja þig Elmar, JH885 var Ford Escort árgerð 1996.

Re: skúrabras og bílabreitingar

Posted: 27.mar 2014, 10:27
frá gislisveri
jongud wrote:Nú er minnið að svíkja þig Elmar, JH885 var Ford Escort árgerð 1996.


En JH855 var hins vegar Carina, skráður 1989. Eins og Elli sagði :)

Re: skúrabras og bílabreitingar

Posted: 27.mar 2014, 10:43
frá jongud
Image

Lesblinda að morgni dags...

Re: skúrabras og bílabreitingar

Posted: 27.mar 2014, 12:30
frá hobo
Image

Svakalega gaman að þessu off topic dæmi.. :)