Síða 1 af 1
					
				Breytingar á orginal olíutank
				Posted: 16.mar 2014, 12:55
				frá hobo
				Hafa menn ekki verið að breyta orginal olíutönkum, skera þá og sjóða nýjar hliðar?
Var að spá hvort þetta væri hægt yfir höfuð, að sjóða í svona tanka. 
Mun að sjálfsögðu þrífa tankinn vel að innan svo ég brenni ekki ofan af mér þakið..
			 
			
					
				Re: Breytingar á orginal olíutank
				Posted: 17.mar 2014, 17:05
				frá hobo
				Hefur í alvöru enginn átt við olíutanka?
			 
			
					
				Re: Breytingar á orginal olíutank
				Posted: 17.mar 2014, 17:37
				frá draugsii
				Hef að vísu ekki átt við svona sjálfur en get ekki ímyndað mér að það sé neitt sérstakt vandamál að gera þetta
ef tankurinn er hreinsaður vel upp og maður er með góða suðu.
Aðal brasið sem ég sé yrði að fá suðurnar þéttar
			 
			
					
				Re: Breytingar á orginal olíutank
				Posted: 17.mar 2014, 19:40
				frá villi58
				Þetta er ekkert mál ef þú hefur kunnáttu við að sjóða, passa að þrífa tankinn sérstaklega vel.
			 
			
					
				Re: Breytingar á orginal olíutank
				Posted: 17.mar 2014, 19:45
				frá hobo
				Hef nokkurra ára reynslu í suðu þannig að þetta hlýtur að reddast, kunnátta er reyndar annað mál..
Er bara að bíða eftir tíma til að fara í þetta og ákvað að forvitnast með svona breytingar.
			 
			
					
				Re: Breytingar á orginal olíutank
				Posted: 17.mar 2014, 19:56
				frá Startarinn
				Ef þetta er járntankur þá eru þeir yfirleitt ekki húðaðir að innan, og það er svosem engin kúnst við þetta.
Íkveikjuhætta er MUN minni á olíutank en bensíntank, pabbi sagðist einhverntíman hafa þrifið bensíntank með dísil og soðið svo í hann. en þetta eru engin geimvísindi, ef þú ætlar að MIG sjóða þetta þarf efnið bara að vera mjög hreint beggja vegna til að minnka bólumyndun í suðunni. 
Uppá að þetta verði þétt væri langbest að logsjóða þetta, en mér sýnist það vera deyjandi list núorðið
			 
			
					
				Re: Breytingar á orginal olíutank
				Posted: 17.mar 2014, 20:04
				frá uxinn9
				Sæll er búinn að sjóða bæði i aukatánkin minn og svo vörubilstánk og hef soðið i stuttum lotum 
og verið með þrýsti loft  og haft loft skifti i tánknum og kælt hann í leiðini og gekk bara vel
Kv
			 
			
					
				Re: Breytingar á orginal olíutank
				Posted: 17.mar 2014, 20:50
				frá Polarbear
				önnur þekkt aðferð til að sjóða í bensíntank er að setja slatta af þurrís í hann. sjóða svo. Þurrís fæst hjá ísaga.
			 
			
					
				Re: Breytingar á orginal olíutank
				Posted: 17.mar 2014, 20:58
				frá arnarig
				Sælir
Aðalmálið til að fá þetta þétt er að þrífa, þrífa og þrífa járnið þar sem á að sjóða það, það sparar mikið vesen í að gefa sér tíma í að gera það vel, sérstaklega með mig/mag suðu, svo er best fyrir  þig að vera með viðbótina í pínu yfirstærð og leggja hana utaná, t.d. ef þú ætlar að síkka tank um 10 cm að klippa þá 11 cm renning og láta brúnirnar liggja aðeins yfir, þá kemstu upp með að hafa meiri hita í suðunni og þá verður suðan auðveldari.
kv
Arnar Ingi