Jæja félagar er með terracan 2002 árgerð 2.5 4D56 BSK
Bíllinn startar og startar og harðneitar að fara í gang. En svo tek ég hitaskynjarann fyrir tölvuna úr sambandi þá fer bíllinn í gang og keyrir fínt virðist þó vanta nokkra hrossa. Þarf einnig að starta nokkrum sinnum þar sem vélin kafnar ítrekað í kaldstarti. Vélarljós logar.
Búinn að skipta út þessum skynjara eina sem breytist er að ég get núna komið bílnum í gang með skynjarann ótengdann og tengt hann án þess að það drepist á bílnum.
Ætla að koma bílnum í tölvu og athuga hvort þurfi ekki að eyða villum út.
Svo er það blessaða skiptingin á millikassanum. Þetta er rafmagnsskipt.
Það loga ljós sem segja til að bíllinn sé í 4x4low þó svo hann sé í afturhjóladrifinu.
Búinn að rífa mótorinn sem skiptir á milli og prufa hann ótengdann þá fer hann á milli 2h og 4h en fer þó ekki í 4LO en ljósin slökknuðu þó en komu aftur á eftir að ég setti þetta aftur saman.
Ætla að henda nýjum relayum og þrífa takkann og sjá hvað það gerir.
Ef þið þekkið eitthvað til þá væri gaman að heyra uppástungur kv Ingólfur
Terracan 2002 pælingar gangtruflanir og millikassavesen
Re: Terracan 2002 pælingar gangtruflanir og millikassavesen
Sæll.
Hefurðu skipt um hráolíusíu?
Nú þekki ég ekki hvort millikassaskiptisýstemið er eitthvað svipað og í Starex, en í Starex er sér hraðaskynjari í millikassanum. Ef hann bilar fer bíllinn ekki í lága drifið. Svo er gott að skoða vírana í mótorinn vel. Gætu verið skemmdir.
Kv. Smári.

Já búið að skipta um hráolíusíu, Ég er mikið að hugsa afhverju neitar bíllinn að fara í gang með skynjarann tengdann villa í tölvunni? Kemst að því í vikunni þegar bíllinn kemst í tölvu
-
- Innlegg: 1273
- Skráður: 15.okt 2013, 19:45
- Fullt nafn: Elías Róbertsson
- Bíltegund: F350 38,5"
- Staðsetning: Ólafsvík
Re: Terracan 2002 pælingar gangtruflanir og millikassavesen
Hefurðu prófað að aftengja glóðarkertun og mæla hvert og eitt. mega ekki vera raðtengd í mælingu.
Fer það á þrjóskunni
Re: Terracan 2002 pælingar gangtruflanir og millikassavesen
Glóðakertin eru ekki orsökin þar sem allt virkar þegar skynjarinn er ótengdur einnig eru þau 4 vikna gömul
-
- Innlegg: 1273
- Skráður: 15.okt 2013, 19:45
- Fullt nafn: Elías Róbertsson
- Bíltegund: F350 38,5"
- Staðsetning: Ólafsvík
Re: Terracan 2002 pælingar gangtruflanir og millikassavesen
Ef að þetta er einhvað svipað og í starex,þá minnir mig að hitaskynjarinn sé tvívirkur og sendir annarsvegar gildi fyrir hitamælirinn og svo gildi fyrir glóðarkertin og hann kveikir vélaljósið ef öryggið fyrir glóðarkertin er farið.
Fer það á þrjóskunni
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur