Síða 1 af 1
Allt eða ekkert :(
Posted: 07.mar 2014, 10:50
frá eirikuringi
Góðan daginn.
Var að keyra um núna áðan og fann fyrir því örstutt þegar ég var að setja í annan gír að það kom hökt, bara einu sinni samt, svo keyrði ég alveg í um hálftíma án þess að þó skipta úr fimmta gír, svo þegar ég var kominn í bæinn og farinn að skipta nokkuð um gír þá fór hann að gera þetta oftar og með enn lengra hökti í einu, svo að lokum kom check engine ljós svo ég hélt beint heim á leið, en á leiðinni þangað varð þetta það alvarlegt að bensíngjöfin hætti að virka í svona 2-5 sekúndur í einu, stuttu seinna virkaði hún bara alls ekki, hann gekk samt hægaganginn fínt en svo ákvað bensíngjöfin að virka aftur og komst heim. Þannig að þetta lýsir sér bara þannig að það er einsog bensíngjöfin bara hætti að virka.
Það sem mér dettur í hug er hvort þetta sé bensínsían eða dælan, en hann er ekkert að freta neitt þegar bensíngjöfin virkar, eða ekkert kraftminni á neinn hátt... þetta er bara on eða off.
Einhver ráð?
Er á Vitöru 1998, 1600cc bsk.
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 07.mar 2014, 11:11
frá hobo
Láttu lesa tölvuna. Ég lenti í svipuðu á minni súkku ad bensíngjöfin hætti að virka, þá án vélaljóss. Þá var það loftflæðiskynjarinn.
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 07.mar 2014, 11:33
frá eirikuringi
hobo wrote:Láttu lesa tölvuna. Ég lenti í svipuðu á minni súkku ad bensíngjöfin hætti að virka, þá án vélaljóss. Þá var það loftflæðiskynjarinn.
Takk, ég prufa það.
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 07.mar 2014, 12:27
frá svarti sambo
Er ekki mótstaða fyrir inngjöfina, ef svo er að þá getur verið að það sé kominn dauður kafli í hana.
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 07.mar 2014, 12:47
frá hobo
Engir rafmagnsvírar í inngjöfinni á þessum bílum.
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 07.mar 2014, 22:58
frá eirikuringi
Takk fyrir ábendingarnar en það koma í ljós að það er af einhverjum ástæðum smá olíusmit að koma upp um öndunarbarkann og var byrjað að hafa áhrif á loftflæðiskynjarann, ég þreif allt vel og minnkaði eilítið magnið af olíu á vélinni og þetta hökt hefur ekki komið aftur eftir það.
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 09.mar 2014, 03:46
frá Subbi
TPS sensor að fara sem stendur fyrir Throttle Position Sensor
þetta er alveg lýsandi dæmi hvernig þeir fara að láta geta líka tekið upp á að gefa allt í botn á versta tíma og stað hef lent í því á mínum en sem betur fer var hann í Park byrja svona með að detta út stutt í einu svo lengist það og verður svo í lagi í einhvern tíma svo fer hann alveg og þá deyr á vélini og hún fer ekki í gang meira fyrr en kominn er nýr sensor
Láttu lesa bílin því ef hann er með Check Engine ljós þá er þetta pottþétt Inngjafar neminn
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 10.mar 2014, 15:41
frá eirikuringi
Subbi, þú hittir naglan á höfuðið, ég lét lesa hann í morgun og fékk þar lesningu uppá að TPS væri að fara. Er kominn með nýjann í og kvefið er farið virðist vera, 7,9,13
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 11.mar 2014, 16:25
frá Subbi
:)
gott að það er komin lausn á þetta
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 12.mar 2014, 08:20
frá gislisveri
Seigir strákar!
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 12.mar 2014, 12:00
frá eirikuringi
Snillingar, ekkert annað. Hún malar núna einsog köttur, eitt samt sem mig langar að spyrja varðandi þegar ég setti nýja skynjarann í. Skrúfgangarnir virðast bjóða uppá að "snúa" aðeins uppá skynjarann, getur verið að ég þurfi að finna réttu stöðuna fyrir skynjarann vegna þess að mér finnst bensíngjöfin hjá mér byrja á of háum snúning... ef þið fattið hvað ég meina. ef rangið á bensíngjöfinni er 0-100 þá finnst mér mín byrja núna allavega á 5 :D
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 13.mar 2014, 08:15
frá jongud
eirikuringi wrote:Snillingar, ekkert annað. Hún malar núna einsog köttur, eitt samt sem mig langar að spyrja varðandi þegar ég setti nýja skynjarann í. Skrúfgangarnir virðast bjóða uppá að "snúa" aðeins uppá skynjarann, getur verið að ég þurfi að finna réttu stöðuna fyrir skynjarann vegna þess að mér finnst bensíngjöfin hjá mér byrja á of háum snúning... ef þið fattið hvað ég meina. ef rangið á bensíngjöfinni er 0-100 þá finnst mér mín byrja núna allavega á 5 :D
Það þarf örugglega að stilla þetta eitthvað af. Og oft er það get með því að hafa lesara tengdan við tölvuna sem getur lesið live status" eða núverandi stöðu á skynjaranum.
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 13.mar 2014, 15:06
frá svarti sambo
Er stöðuneminn ekki bara viðnámsmældur og þá þarftu bara að fá uppgefið hvert viðnámið á að vera í byrjunarstöðu, og getur stillt stöðunemann án einhverrar tölvu. bara hefbundinn digital rafmagnsmælir sem mælir viðnám. Og svo bara plug and play.
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 13.mar 2014, 17:46
frá jongud
svarti sambo wrote:Er stöðuneminn ekki bara viðnámsmældur og þá þarftu bara að fá uppgefið hvert viðnámið á að vera í byrjunarstöðu, og getur stillt stöðunemann án einhverrar tölvu. bara hefbundinn digital rafmagnsmælir sem mælir viðnám. Og svo bara plug and play.
LIKE
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 13.mar 2014, 18:33
frá Startarinn
Á volvo vélinni sem ég er að setja í hjá mér er snerta í þessum skynjara sem skynjar 0-stöðu, maður heyrir smellinn ef maður hreyfir við gjöfinni, ég stillti þetta bara þannig að ég heyrði í snertunni um leið og gjöfin væri hreyfð, ég hef ekki lent í neinum vandamálum með það.
Re: Allt eða ekkert :(
Posted: 13.mar 2014, 21:20
frá eirikuringi
ég prufaði að snúa honum í sitthvora áttina uppá að fá extreme í báðar áttir og stillti mig svo til. Hann er orðinn eðlilegur núna.