Síða 1 af 1

cherokee

Posted: 05.nóv 2010, 22:18
frá viktorinn
er með jeep cherokee og var að spá að setja hann á 36" svona sjálfur hvað þarf ég að kaupa í það.

Re: cherokee

Posted: 05.nóv 2010, 22:19
frá JonHrafn
Árgerð, vél og er hann óbreyttur?

Re: cherokee

Posted: 06.nóv 2010, 18:32
frá viktorinn
hann er v6 óbreittur árg 96

Re: cherokee

Posted: 06.nóv 2010, 19:31
frá gambri4x4
ertu viss um að hann sé v6 96 modelið???myndi frekar halda að hann væri með línu 6

Re: cherokee

Posted: 06.nóv 2010, 19:48
frá jeepcj7
Hann er nú líklega ekki V6 ef hann er orginal en er þetta grand eða litla boddýið?
Ég hef reyndar ekki breitt svona bílum en hef séð margar útfærslur af breytingum allt frá því að bara klippa hressilega úr og svo uppí talsverða hækkun.Mér sýnist samt að skásta breytingin sé að færa allar festingar á hásingum upp og hef trú á að ca.6-8 cm. ætti að duga svo hafa menn snúið kónunum við í stýrisstöngum til að færa þær upp á móti hækkun.
Fyrir 36 tommu er líklega ekki þörf á færslu á hásingum en svo sem ekki mikið mál að gera það í leiðinni til að koma 38 tommu þægilega fyrir.Og svo eru það að sjálfsögðu brettakantar og jafnvel hlutföll/lásar sem eru fyrir utan dekk/felgur stærstu kostnaðarliðirnir.Svo er hellingur af allskonar smotteríi sem týnist til drullusokkar,stigbretti og allavega dóterí.
Það er annars slatti af gaurum hérna sem hafa breytt svona vögnum og eiga jafnvel myndir af ferlinu til að létta fyrir þér.