Síða 1 af 1

Nissan patrol 2,8 93 árgerð drepur á sér

Posted: 02.mar 2014, 00:48
frá Emil þórðar
Þannig er það að ég var að keyra hann og þá byrjar allt í einu að tikka í vélinni svo þegar ég sló af þá dó hann enn startaði alveg eðlilega eftir það semsagt vélinn snérist allveg eðlilega hvað getur þetta verið ?

Re: Nissan patrol 2,8 93 árgerð drepur á sér

Posted: 02.mar 2014, 01:56
frá pattigamli
mögulega riðgað olíurör gat

Re: Nissan patrol 2,8 93 árgerð drepur á sér

Posted: 02.mar 2014, 11:56
frá Emil þórðar
nei það er ekki það búinn að gá það var búið að glamra í vélinni í smá tíma gæti verið að það komi svoleiðis hljóð í olíuverkið sjálft ?

Re: Nissan patrol 2,8 93 árgerð drepur á sér

Posted: 02.mar 2014, 12:53
frá Stebbi
Getur verið að það sé eitthvað ógeð í lögnum eða tanki sem hafi náð að festa spíss opin. Ég lennti i svona síðasta haust með 6.2 sem gekk á steikingarfeiti og það lagaðist með einhverjum eiturefnakokteil sem ég setti á tankinn.

Re: Nissan patrol 2,8 93 árgerð drepur á sér

Posted: 02.mar 2014, 14:40
frá patrolno1
athugaðu tímareimina sennilegt að olíuverkið hafi farið yfir tönn. Það kom fyrir hjá mér að reimin var orðinn slök og gömul.

kv