Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
Guðmundur Ingvar
Innlegg: 93
Skráður: 19.mar 2011, 21:09
Fullt nafn: Guðmundur Ingvar Ásgeirsson
Staðsetning: Skagafjörður

Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá Guðmundur Ingvar » 26.feb 2014, 20:08

Jæja er í smá pælingum enn eina ferðina.
Er að dunda í því í rólegheitum þessa dagana að hnoða 350 oldsmobile bensín vél, þar sem áður var 350 disel.
Búina að breyta mótorfestingum og er mótorin komin í og boltaður fastur í bílin og við skiptinguna.
Ætlaði að prófa að setja í gang áður en lengra yrði haldið, þar sem ég veit ekkert um þennan mótor. væri svekkjandi að vera búin að tengja, smíða og breyta öllu ef hann færi svo ekki einusinni í gang.

En málið er að ég fæ ekki neista svona í fljótu bragði.
var nú búin að óska eftir kveikju og loki hér á spjallinu við litlar undirtektir, geri því ráð fyrir því að þetta liggi ekki á lausu, ekki víða amk.
En kveikjan er framan á vélinni, og er háspennukeflið boltað fast í kveikjulokið. þrír vírar úr kveikjunni sjálfri og í plögg á lokinu, svo eru tveir vírar í lokið, annar merktur "bat" sem ég geri ráð fyrir að sé stytting á "bateri" og því fari 12 volt þar inn, svo stendur "tach" á hinum vírnum, með smá googli og pælingur er ég búin að komast að þeirri niðurstöðu að þetta sé teljari fyrir snúningshraðamæli. eða hvað?
Einnig er ég búin að reyna að ath á netinu hvernig eigi að mæla þetta dót, til að vita hvað af þessu væri þa bilað ef svo væri, en er ekki alveg nógu sleipur í enskunni til að vera búin að fynna gagnlegar uppl. ennþá.

Þá kemur spurning formlega.
Ætti ekki að vera nóg að tengja beint á geymi í vírin sem er merktur "bat" til að fá neista til að prófa að setja í gang?
Og, kann einhver eða veit um uppl. hvar hægt er að fynna hvernig eigi að mæla þetta dót, til að ath hvort og hvað sé í lagi af þessu? óþarfi að skipta um allt heila klabbið ef það væri bara háspennukeflið sem væri farið.

kv
Guðmundur



User avatar

StefánDal
Innlegg: 1224
Skráður: 23.mar 2010, 21:21
Fullt nafn: Stefán Hrannar Dal Björnsson
Bíltegund: Toyota Hilux

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá StefánDal » 26.feb 2014, 20:22

Segir þetta þér eitthvað?

Image

Annars er alveg hellingur af teikningum sem koma upp á google ef maður leitar af "Oldsmobile V8 wiring diagram"

https://www.google.is/search?q=oldsmobi ... 3&ie=UTF-8


pattigamli
Innlegg: 141
Skráður: 19.jún 2011, 11:44
Fullt nafn: Óskar Gunnarsson

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá pattigamli » 26.feb 2014, 23:51

mér sýnist á lýsingunni að kveikjan heiti hays.það fæst allt í hanna í bílanaust.
jú það er nó að tengja bat beint í geimir til að prófa en ekki hægta åð drepa á nema að rjúfa strauminn aftur.


Höfundur þráðar
Guðmundur Ingvar
Innlegg: 93
Skráður: 19.mar 2011, 21:09
Fullt nafn: Guðmundur Ingvar Ásgeirsson
Staðsetning: Skagafjörður

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá Guðmundur Ingvar » 27.feb 2014, 07:48

kviekjan heitir reyndar delco remy,
En ég prófa kanski bara að þrífa þetta allt saman og hreinsa tengingar, vita hvort þessu "batnar" ekki.


pattigamli
Innlegg: 141
Skráður: 19.jún 2011, 11:44
Fullt nafn: Óskar Gunnarsson

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá pattigamli » 27.feb 2014, 09:57

Guðmundur Ingvar wrote:kviekjan heitir reyndar delco remy,
En ég prófa kanski bara að þrífa þetta allt saman og hreinsa tengingar, vita hvort þessu "batnar" ekki.

það passar alveg hays er tegund fra delco remy


Höfundur þráðar
Guðmundur Ingvar
Innlegg: 93
Skráður: 19.mar 2011, 21:09
Fullt nafn: Guðmundur Ingvar Ásgeirsson
Staðsetning: Skagafjörður

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá Guðmundur Ingvar » 27.feb 2014, 12:48

pattigamli wrote:
Guðmundur Ingvar wrote:kviekjan heitir reyndar delco remy,
En ég prófa kanski bara að þrífa þetta allt saman og hreinsa tengingar, vita hvort þessu "batnar" ekki.

það passar alveg hays er tegund fra delco remy


Já okey, maður er alltof lítið í þessum málum greynilega

User avatar

jeepcj7
Innlegg: 1697
Skráður: 01.feb 2010, 08:46
Fullt nafn: Hrólfur Árni Borgarsson
Bíltegund: F-250 Powerstroke
Staðsetning: Akranes

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá jeepcj7 » 02.mar 2014, 23:29

Þessi kveikja heitir HEI og er alveg þrælfín í lítið breytta mótora þú þarft bara eins og fram hefur komið bara að setja straum á Bat og hitt Tach er eins og þú segir úttak fyrir snúningshraðamælir.
Heilagur Henry rúlar öllu.


olei
Innlegg: 815
Skráður: 30.apr 2011, 01:41
Fullt nafn: Ólafur Eiríksson

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá olei » 03.mar 2014, 00:02

Jebb, Delco Remy High Energy Ingition - HEI. Var kölluð heykveikja í den.

Þarf bara straum á "bat" tengið og á þá að gefa neista.


Stjáni Blái
Innlegg: 357
Skráður: 04.feb 2010, 08:36
Fullt nafn: Kristján Stefánsson

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá Stjáni Blái » 03.mar 2014, 00:39

Skrýtið þetta með staðsettninguna á kveikjuni, ég var einu sinni með 455 Oldsmobile og þar var kveikjan að aftan eins og á öllum V8 GM vélum að Buick og Cadillac undanskildum. Skiptingin ásamt mörgu öðru passar hinsvegar á milli. Miðað við þína lýsingu gæti þetta því verið Buick eða Cadillac vél sem þú ert með, líklegra að þetta sé Buick ef að hún er 350 cid. Kannaðu málið ! Gangi þér vel..


Höfundur þráðar
Guðmundur Ingvar
Innlegg: 93
Skráður: 19.mar 2011, 21:09
Fullt nafn: Guðmundur Ingvar Ásgeirsson
Staðsetning: Skagafjörður

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá Guðmundur Ingvar » 03.mar 2014, 07:48

Stjáni Blái wrote:Skrýtið þetta með staðsettninguna á kveikjuni, ég var einu sinni með 455 Oldsmobile og þar var kveikjan að aftan eins og á öllum V8 GM vélum að Buick og Cadillac undanskildum. Skiptingin ásamt mörgu öðru passar hinsvegar á milli. Miðað við þína lýsingu gæti þetta því verið Buick eða Cadillac vél sem þú ert með, líklegra að þetta sé Buick ef að hún er 350 cid. Kannaðu málið ! Gangi þér vel..


Þetta er rétt hjá þér, þetta er buick ekki oldsmobile. veit ekki afhverju ég ruglaði nöfnonum saman.
Ég leitaði einmitt að buick mótor, svo hann myndi passa á skiptinguna.
En fyrir hvað stendur samt cid? "350 cid"

User avatar

jongud
Innlegg: 2625
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá jongud » 03.mar 2014, 08:28

cid stendur fyrir "cubic inch displacement" eða fer-tommu rúmmál.
Öðru nafni "kúbiktommur"

Þú margfaldar kúbiktommurnar með 16,4 til að fá út rúmsentimetra.

User avatar

StefánDal
Innlegg: 1224
Skráður: 23.mar 2010, 21:21
Fullt nafn: Stefán Hrannar Dal Björnsson
Bíltegund: Toyota Hilux

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá StefánDal » 03.mar 2014, 11:44

Ég átti einu sinni Willys jeppa með þessari vél 350 Buick. Þetta er virkilega skemmtilegur jeppamótor. Þegar þetta fór loksins upp á snúning þá var ekkert sem stoppaði hann.


Höfundur þráðar
Guðmundur Ingvar
Innlegg: 93
Skráður: 19.mar 2011, 21:09
Fullt nafn: Guðmundur Ingvar Ásgeirsson
Staðsetning: Skagafjörður

Re: Kveiku vandamál, gamall 350 olds

Postfrá Guðmundur Ingvar » 03.mar 2014, 13:03

svona mótor varð nú bara fyrir valinu, til að losna við þessa blessuðu 5,7 disel sem var í cadillac, og þessi mótor passaði beint á skiptinguna sem var í bílnum.


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 35 gestir