Síða 1 af 1

Stýrisendar í Patrol Y60

Posted: 06.feb 2014, 13:54
frá Höfuðpaurinn
Hvernig er hagkvæmast að græja nýja stýrisenda í svona bíl, er ekki alveg til í að kaupa nýja stöng með nýjum endum fyrir bæði nýrun.

Re: Stýrisendar í Patrol Y60

Posted: 06.feb 2014, 16:42
frá Gunnar00
http://www.ebay.com/sch/i.html?_trksid= ... &_from=R40

hérna er listi yfir þá sem til eru á ebay. og síðan geturu fundið á www.rockauto.com

ég panta flesta varahluti að utan. í svona 85-90% tilvika eru þeir mun ódýrari þar.

Re: Stýrisendar í Patrol Y60

Posted: 06.feb 2014, 18:41
frá atli885
stal og stansar redda þessu fyrir þig :)

þeir skera stýrisendan af stönginni þinni og renna skrufgang á endan á stönginni..

svo reddar þu þer hulsu og stýrisenda..

þeir eru með eitthvað brakket sem byr til skrúfgang.. þarf semsagt ekki að setja stöngina i rennibekk

eg borgaði 10þusund fyrir þetta hjá þeim :)

Re: Stýrisendar í Patrol Y60

Posted: 06.feb 2014, 23:23
frá Izan
Sælir

Ég fékk mann til að smíða nýtt prik á milli og renna gengjur sem gamlir bronco endar passa á og það kemur svona skínandi vel út. Endarnir kosta slikk og eru bara fínir.

Kv Jón Garðar

Re: Stýrisendar í Patrol Y60

Posted: 07.feb 2014, 16:39
frá Baldur Pálsson
Heyrði einu sinni góða sögu af mann sem fór með Patrol í skoðun og var sett út á stýrisenda vinstra meginn hann fór og snéri stönginni við og fékk fullaskoðun.................