ARB læsing f. 4cyl Toyota í 6cyl

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.
User avatar

Höfundur þráðar
Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

ARB læsing f. 4cyl Toyota í 6cyl

Postfrá Startarinn » 20.jan 2014, 09:53

Sælir

Ég eignaðist fyrir löngu síðan 2 arb driflæsingar úr Toyota hilux í minni gerðina af drfkögglum, þ.e. sem voru í 4 cyl bílunum.

Bæði drifin hjá mér eru með sverari gerðina af burðarlegum á mismunadrifinu (vona að þið skiljið hvað ég meina) eins og var í 6cyl bílnum og að ég held dísil og svo greinilega 70 cruiser, en báðir kögglarnir eru úr 70 cruiser.

Vandamálið er að innanmál á legunum er 5mm minna á 4cyl útfærslunni og utanmál að sama skapi eitthvað minna líka svo ég get ekki notað rærnar sem fylgja læsingunni og halda meðal annars hringnum sem leiðir loftið að læsingunni

Er einhver leið að föndra þetta saman?


"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


Hlynurh
Innlegg: 120
Skráður: 21.mar 2010, 20:08
Fullt nafn: Hlynur Hilmarsson

Re: ARB læsing f. 4cyl Toyota í 6cyl

Postfrá Hlynurh » 20.jan 2014, 11:29

Græjaðu mynd af læsinguni eða finndu út úr hvað hún heitir á arb síðunni
Kv hlynur

User avatar

Höfundur þráðar
Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: ARB læsing f. 4cyl Toyota í 6cyl

Postfrá Startarinn » 20.jan 2014, 11:49

Það er ekkert um þessa týpu á ARB síðunni, þetta eru gömlu 4ra bolta læsingarnar með 45mm legusætum, allar nýrri læsingarnar eru með 50mm legusætum, sem mismunadrifin eru líka með sem eru núna í bílnum.

Svo er ég á úti á sjó svo það er ekki beint auðvelt að græja myndir
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"

User avatar

jongud
Innlegg: 2625
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: ARB læsing f. 4cyl Toyota í 6cyl

Postfrá jongud » 20.jan 2014, 12:32

http://arb.com.au/media/products/air-lockers/application_chart.pdf

Sjáðu hérna á bls.12
Þetta er RD132 læsingin
Það er spurning hvort það er nóg að nota annan hring sem leiðir loftið að læsingunni og réttar legur.
Þeir ættu að vita allt um þetta hjá Bílabúð Benna. Allavega var náungi sem var kallaður Tóti (Þórarinn held ég að sé allt nafnið) og hann var með allar upplýsingar í kollinum á sér. Hann pantaði allavega tannhjól í eldgamla loftlæsingu fyrir mig.


villi58
Innlegg: 2134
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: ARB læsing f. 4cyl Toyota í 6cyl

Postfrá villi58 » 20.jan 2014, 12:59

Tóti er höfðingi, hef ekki komið að tómum kofanum hjá honum, virðist vita allt.

User avatar

JonHrafn
Innlegg: 578
Skráður: 06.feb 2010, 10:41
Fullt nafn: Jón Hrafn Karlsson
Staðsetning: Keflavík south

Re: ARB læsing f. 4cyl Toyota í 6cyl

Postfrá JonHrafn » 20.jan 2014, 13:06

Ég var í sama brasi og þetta er nánast ómögulegt. Ein lausnin hefði verið að renna spacer utan um 45mm leguna svo hún passi í 50mm sætið , ég lagði ekki í það ævintýri.

User avatar

jongud
Innlegg: 2625
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: ARB læsing f. 4cyl Toyota í 6cyl

Postfrá jongud » 20.jan 2014, 13:34

JonHrafn wrote:Ég var í sama brasi og þetta er nánast ómögulegt. Ein lausnin hefði verið að renna spacer utan um 45mm leguna svo hún passi í 50mm sætið , ég lagði ekki í það ævintýri.


Skrambinn !
Það er þá bara eftir möguleikinn að fá báðar hliðareiningarnar í drifið ("endaplattana"), en það er stór spurning hvort það borgar sig.

User avatar

Höfundur þráðar
Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: ARB læsing f. 4cyl Toyota í 6cyl

Postfrá Startarinn » 20.jan 2014, 14:19

jongud wrote:http://arb.com.au/media/products/air-lockers/application_chart.pdf

Sjáðu hérna á bls.12
Þetta er RD132 læsingin


Ég skoðaði þetta aðeins, RD132 er með 50mm legusætum, það er bent á að nota aðrar legur með henni í þessi drif til að hún passi. Svo sá ég myndir af RD132 og hún lýtur aðeins öðruvísi út en mínar.

Ég var búinn að íhuga að renna hólk á læsinguna til að nota 50mm legurnar en ég er fallinn á tíma þar sem það er búið að selja skipið undan mér og ég er í síðasta túr, svo ég kemst ekki í rennibekk á næstunni

Nú er bara að komast að því hvað legurnar heita og sjá hvort ég geti fengið legu með sama utanmáli og stærri legan en með minna innanmáli.
Þá er bara að föndra hringinn á orginal róna, það verður varla stórmál

Þetta VERÐUR gert, það er mér fátt meiri hvatning en að segja mér að þetta sé ekki hægt eða að þetta sé of mikið vesen
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"

User avatar

jeepcj7
Innlegg: 1697
Skráður: 01.feb 2010, 08:46
Fullt nafn: Hrólfur Árni Borgarsson
Bíltegund: F-250 Powerstroke
Staðsetning: Akranes

Re: ARB læsing f. 4cyl Toyota í 6cyl

Postfrá jeepcj7 » 20.jan 2014, 15:05

Það er renndur hólkur utan um leguna þegar verið er að nota köggul fyrir stærri legur í 9" ford drifunum og það bara virkar og endist alveg sama hvað því er boðið.Þetta er oft gert ef menn eru með aftermarket köggla sem taka við drifum fyrir allt að 40 rillu öxla en nota svo 28 eða 31 rillu drif.
Heilagur Henry rúlar öllu.


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 30 gestir