Síða 1 af 1

Fini Relay

Posted: 15.nóv 2013, 12:57
frá Hagalín
Svona fyrir þá sem eiga Fini dælur og hugsanlega þurfa að versla relay í þær þá fór ég í smá verð könnun á því.
Þetta er 200amp 12v og kostar 18þúsund í Fossberg og fannst mér það aðeins of mikið.
Hringdi í Rótor í Hfj og þar er það til á 6-7þúsund.

Hendi þessu bara hér inn svo menn/konur viti af þessu.

Kv Hagalín

Re: Fini Relay

Posted: 15.nóv 2013, 13:16
frá sukkaturbo
Sæll og takk fyrir. kveðja guðni

Re: Fini Relay

Posted: 15.nóv 2013, 14:23
frá Izan
Sæll

Þú getur alveg eins keypt startpung úr bronco á 2.500 kall í dýranaust.

Kv Jón Garðar

Re: Fini Relay

Posted: 15.nóv 2013, 16:23
frá ivar
Áhugavert... Var að setja til bráðabyrgða 70amp relay en geri ráð fyrir að það muni ekki endast.
Þessi startpungs hugmynd hjómar ekkert illa enda ætluð á svipaða mótora að stærð. Getur þú sagt nánar hvernig maður fengi þetta í bílanaust? Árgerð og vél verður örugglega spurt að.

Re: Fini Relay

Posted: 15.nóv 2013, 16:58
frá StefánDal
Izan wrote:Sæll

Þú getur alveg eins keypt startpung úr bronco á 2.500 kall í dýranaust.

Kv Jón Garðar


Startpungur virkar líka sem glóðarkerta relay og er töluvert ódýrara. Þetta er gott sparnaðarráð :)

Re: Fini Relay

Posted: 16.nóv 2013, 01:43
frá Izan
ivar wrote: Getur þú sagt nánar hvernig maður fengi þetta í bílanaust? Árgerð og vél verður örugglega spurt að.


spyrð afgreiðslumanninn hvort hann sé með pung.....

Munurinn á einhverju Hella relýi og startrelýi er sá að startrelýið er gert til að þola neistaflug sem fylgir því að starta mótor en hella gerir ekki ráð fyrir svo miklu neistaflugi.

Grínlaust þá kannast bílanaustkallinn pottþétt við bronco startpunginn.

Kv Jón Garðar

Re: Fini Relay

Posted: 16.nóv 2013, 15:24
frá Skottan
Hey kúl, takk fyrir þetta.

Re: Fini Relay

Posted: 16.nóv 2013, 17:07
frá Sævar Örn
Á minni fini dælu er sýnist mér upprunalegt relay, það er 80A, er ég þá með einhverja afkastaminni dælu eða eru menn bara með oþarflega stóra segulrofa? mín virkar allavega fínt og afkastar vel, hef ekki tekið eftir varmamyndun í segulliða eða 3q snúrum að dælunni

Re: Fini Relay

Posted: 16.nóv 2013, 19:10
frá Freyr
Vann á patrol með fini dælu. Öryggið fyrir hana var 100A liði sem var hægt að smella inn aftur ef hann sló út. Það gerðist reglulega að það þurfti að slá honum inn, ekki vandamál alla jafna en að pumpa í 4x 38"+ dekk úr kringum 10 psi upp í fullan þrýsting dugði stundum til að slá út.