Síða 1 af 1
Manual Boost Controler í Patrol
Posted: 14.nóv 2013, 22:35
frá ivarhauks
Sælir, haldi þið að það sé erfitt að koma svona græju fyrir og stilla hana rétt
http://www.ebay.com/itm/turbocharger-Ma ... ec&vxp=mtr ,
er með boostmæli, ættli ég þurfi eitthvað annað til að koma þessu í ?
Kv Ívar
Re: Manual Boost Controler í Patrol
Posted: 14.nóv 2013, 22:37
frá Stebbi
Getur alltaf pípað lögnina frá wastegate ventlinum inn í bíl og haft stilligræjuna þar. Þá stillirðu bara eftir þörfum og fylgist vel með mælinum.
Re: Manual Boost Controler í Patrol
Posted: 14.nóv 2013, 22:49
frá ivarhauks
Já ég var einmitt að gæla við það:)
Re: Manual Boost Controler í Patrol
Posted: 15.nóv 2013, 04:16
frá Sævar Örn
þú færð hentugan krana í þetta verkefni og mjúkar grannar slöngur í landvélum, mín reynsla er samt sú að hafa slöngurnar sem styðstar til að það komi ekki "lagg" á boostið að framhjáhlaupsventlinum, ef ég var með kranann inn í bíl átti túrbínan það til að skjóta þrýstingnum upp í c.a. 22 psi áður en hún fór niður í 16 eins og ég vildi, svo færði ég kranann fram í húdd og þá fór hún bara beint í 16 og aldrei yfir
Re: Manual Boost Controler í Patrol
Posted: 15.nóv 2013, 09:50
frá ivarhauks
Já þú meinar, hef það í huga, á ég að byrja með lokann alveg lokaðann þrgar ég byrja að fikta?
Re: Manual Boost Controler í Patrol
Posted: 15.nóv 2013, 17:18
frá Stebbi
ivarhauks wrote:Já þú meinar, hef það í huga, á ég að byrja með lokann alveg lokaðann þrgar ég byrja að fikta?
Svo geturðu líka farið flóknu leiðina og stillt þetta eins hátt og þú þorir og sett segulloka sem víxlar á milli orginal og boost controlers og haft á takka inn í bíl. Redneck tölvukubbur.
Re: Manual Boost Controler í Patrol
Posted: 15.nóv 2013, 17:38
frá baldur
Best er náttúrulega að vera með boost controllerinn einhvernvegin tengdan við inngjöfina, því bíllinn eyðir meira ef hann er að blása óþarflega miklu miðað við aflþörf. (td í þjóðvegakeyrslu) því það fer þá meiri orka í að knýja túrbínuna.
Re: Manual Boost Controler í Patrol
Posted: 16.nóv 2013, 10:19
frá ivarhauks
Hvernig gerir maður það Baldur?
Re: Manual Boost Controler í Patrol
Posted: 18.nóv 2013, 15:49
frá baldur
Túrbínan reglar sig að miklu leiti sjálf, hún blæs meira eftir því sem það er meira afgas (meiri olía) til að knýja hana.
Hinsvegar skilar mótorinn bestu nýtninni þegar að túrbínan er ekki að blása meira lofti inn á vélina en vélin getur brennt.
Besta leiðin er auðvitað að vera með electroniskan boost controller sem að reglar þrýstinginn eftir inngjafarstöðu.
Einfaldast er hinsvegar að tengja bara segulloka sem getur hleypt framhjá boost controllernum þegar ekki er þörf á hærri þrýstingi.