Síða 1 af 1

stýris stangar halli í wrangler

Posted: 14.nóv 2013, 12:53
frá saevars
hvað hafa menn verið að gera til að fá hallan á stýris stöngini sem beinastan . þar sem þetta hallar allt of mikið hjá mér .

ég geri mér grein fyrir að flestir seigja mér skipta um hásingu en ég ætla að halda mig við dana 30 eins og er ...

allar hugmyndir væru rosalega vel þegnar

kv sævar

Re: stýris stangar halli í wrangler

Posted: 17.nóv 2013, 12:18
frá atli885

Re: stýris stangar halli í wrangler

Posted: 20.okt 2014, 20:47
frá atli885

Re: stýris stangar halli í wrangler

Posted: 21.okt 2014, 14:24
frá Kiddi
Það er t.d. hægt að setja síðari arm á stýrismaskínuna. Mig grunar að ég eigi slíkan en þarf að kanna í geymsluna.

Re: stýris stangar halli í wrangler

Posted: 21.okt 2014, 15:36
frá Hjörturinn
Skiptir hallinn á togstönginni svo miklu máli ef þverstífan er í sama halla?
Auðvitað breytist álagið á stýrismaskínuna eitthvað við hallann, en ætti ekki að koma að sök nema þetta sé mjög mikill halli

Með síðari arma þá þarf að vanda þau kaup vel, vilt ekki að þetta gefi sig

Re: stýris stangar halli í wrangler

Posted: 21.okt 2014, 21:42
frá Kiddi
Það er auðvitað skemmtilegra að hafa þverstífuna og togstöngina nær lágréttu, þannig er hliðarhreyfing á hásingunni í lágmarki.

Ég fann ekki arminn í geymslunni en mig minnir að hann hafi verið ættaður úr ZJ Grand Cherokee (original armur). Minnir að droppið í YJ arminum sé 2.5" en ZJ um 4".

Ef það er smíðuð stífa sem tekur um legginn á stýrismaskínunni ofan við þar sem sektorsöxullinn gengur út og fest yfir í hinn grindarbitann ætti ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að svona armur setji of mikið álag á grindina. Það er hægt að smíða þetta úr t.d. rörabaulum nú síðan vill svo heppilega til að stimpilstöng úr Chevy 350 smellpassar þarna utan um.