Síða 1 af 1

Hvar fær maður lo-gír i lc 60 ??

Posted: 10.okt 2013, 14:06
frá ingi árna
Er buinn að vera í smá logīrs pælingum í 60 kruserinn minn, hann er með turbo vélina og 5 gíra kassan. Hvar hafa menn verið að fá þá og eða hvernig hafa menn verið að smiða þá? Hvað kosta þeir??

Re: Hvar fær maður lo-gír i lc 60 ??

Posted: 10.okt 2013, 16:45
frá sukkaturbo
Sæll prufaðu að hafa samband við Ljónstaði um verð og fleira. Fínir karlar þar. kveðja guðni

Re: Hvar fær maður lo-gír i lc 60 ??

Posted: 10.okt 2013, 17:44
frá ellisnorra
Svo er líka hægt að lækka lága drifið í millikassanum með því að skipta út innsvolsi í staðinn fyrir innvols úr lc70 kassa. Ég veit reyndar ekki hversu mikil lækkun það er, alveg örugglega ekkert á við að fá sér low gír en töluvert ódýrara skref.
Ef þú færir í þetta þá á ég svona kassa handa þér sem þú getur fengið fyrir mjög lítið fé eða eitthvað brask.

Re: Hvar fær maður lo-gír i lc 60 ??

Posted: 10.okt 2013, 18:24
frá sigurdurk
Ég er með lækkuð hlutföll í millikassanum hjá mér ásamt 4.88 drifum á 44" og finnst ekki vera þörf á logír nema þá einnahelst til þess að minka brotið á framskaptinu en það er talsvert mikið á bílnum hjá mér.

Re: Hvar fær maður lo-gír i lc 60 ??

Posted: 10.okt 2013, 20:32
frá Hilmar Örn
Mig minnir að lc 60 sé með 1:96 í lága en lc 70 2:28 í lága,

Re: Hvar fær maður lo-gír i lc 60 ??

Posted: 10.okt 2013, 21:10
frá ingi árna
takk fyrir góð svör. ég er einmitt með lækkun í millikassanum og einnig á 4:88. langar samt svoldið í milligírinn bara ef það skyldi koma aðstaða þar sem hægt er að nota hann.
Ég er einmitt líka í vandræðum með framskaftið, það er mjög mikið brot á, því kassarnir eru svo stuttir og bílinn svoldið hár, er búinn að fara með tvö núþegar.
Ég er líka búinn að vera horfa á að bæta öðrum gírkassa fyrir framan en það er kannski bara meira vesen og dýrara?

Re: Hvar fær maður lo-gír i lc 60 ??

Posted: 10.okt 2013, 21:26
frá Magni
Ég átti lc60 fyrir nokkrum árum og spurðist fyrir með millikassa í þessa bíla. Ef ég man rétt þá voru einu sinni smíðaðir 3-4 millikassar í þessa bíla af renniverkstæði í Haf (skerpa?). Þetta voru menn sem tóku sig saman og létu smíða fyrir sig. Eitthvað rámir mig í að það hafi ekki verið auðvelt að finna kassa í þetta...ekki vissa samt. Kjartan í stillingu getur svarað þessu betur nú eða "bjornod" hérna á jeppaspjallinu, minnir að annahvor þeirra hafi látið smíða fyrir sig.

Ég átti einmitt í sömu vandræðum með framskaftið, mikið brot á tvöfalda liðnum hjá millikassa(mikið hækkaður á grind). Fékk mér tvöfaldann lið hjá Stál og Stönsum og þeir fræstu innanúr honum svo það mætti koma meira brot á hann. En framsköftin voru til friðs meðan ég átti hann.

Re: Hvar fær maður lo-gír i lc 60 ??

Posted: 10.okt 2013, 22:01
frá sukkaturbo
Sælir félagar við erum með lógír 54" Crusernum Baldur Pálsson fyrri eigandi getur frætt ykkur allt um þennan lógír en þetta er New Procses kassi 246 úr suburban held ég 2:72.1 kveðja guðni

Re: Hvar fær maður lo-gír i lc 60 ??

Posted: 11.okt 2013, 09:53
frá Dúddi
Þeir hafa smiðað svona á ljónstöðum og svo hefur Árni Brynjólfs smíðað þetta.

Re: Hvar fær maður lo-gír i lc 60 ??

Posted: 11.okt 2013, 12:18
frá ingi árna
Takk fyrir svörin.
Ég ætla skoða þetta meira og tala við einhverja af þessum nefndum hér að ofan.