Síða 1 af 1
					
				musso tregur í gang
				Posted: 28.sep 2013, 23:28
				frá runar7
				musso hjá mér 2,9 tdi er ótrúlega skrítin í gang þegar hann er kaldur hann flýgur í gang, gengur í svona 1-3 sec og deyr aftur svo þarf ég bara að starta og starta í 1-2 mínutur og þá rétt höktir hann í gang og er svo alveg eðlilegur eftir það dettur ykkur eitthvað í hug hvað þetta gæti verið ?
			 
			
					
				Re: musso tregur í gang
				Posted: 29.sep 2013, 12:42
				frá snöfli
				Hljómar eins of loft í dísil lögn einhversstaðar frá tanki að olíuverki.  Olía til að starta strax inná spíssum og olíuverki, þarf svo að dæla loftbólu í gegn eftir það. l.
			 
			
					
				Re: musso tregur í gang
				Posted: 29.sep 2013, 12:56
				frá snöfli
				Gætir séð smit einhversstaðar.  Gat nógu lítið til að loft kommist inn þegar dautt er á olíudælunni þarf ekki að vera það stórt að leki sjáist vel.  Fara í genum öll tengi og þétta.  Hosuklemmur etc.  Það er blikklok afturí undir aftursætinu á þessum bíl, ef ég man rétt, bílstjórameginn. Þar undir er tengingin í tankinn með hæðarmælium etc.  Kíktu þar líka.  Þar ryðgar þetta stundum.  Allavega þrífa og horfa eftir smiti og herða upp.
			 
			
					
				Re: musso tregur í gang
				Posted: 29.sep 2013, 15:09
				frá juddi
				Skoða vel hráolíusíu og ekki hika við að skipta um hana ef hún er ekki nýleg
			 
			
					
				Re: musso tregur í gang
				Posted: 29.sep 2013, 18:39
				frá JLS
				Ég er með svona Musso dísel sem er með sama vesen og þú lýsir, þar sem minn músso er notaður sem túnjeppi í sveitinni þá var þetta vandamá leyst á auðveldan hátt, við leggjum honum alltaf í smá brekku/halla með framendann niður, þá dettur hann alltaf í gang sé nóg rafmagn, en halli hann aftur yfir nótt eða lengur þá þarf nánast að beyta rússa aðferðinni með að hafa bensínstartmótor :)       
En það er auðvelt að prufa leggja bílnum í smá halla, ef hann dettur í gang þá er gat á lögn :)
			 
			
					
				Re: musso tregur í gang
				Posted: 29.sep 2013, 18:54
				frá sukkaturbo
				Sæll settu rafmagnsdælu á þetta og rofa svona dæla fæst í Bílanaust kveðja  guðni
			 
			
					
				Re: musso tregur í gang
				Posted: 30.sep 2013, 00:40
				frá runar7
				þið eruð nú meiri snillingarnir fann smá pínu lítið gat á slönguni sem kemur frá tankinum og fer inn á olíuverkið við hliðinna á spíssunum stitti slönguna aðeins og tróð henni aftur upp á og bíllinn eins og nýr þakka ykkur æðislega fyrir allar tilögurnar þið eruð meistarar!!!