Síða 1 af 1
vantar smá ráð
Posted: 24.sep 2013, 15:24
frá hilux
Er með toyota hiace sem varð olíulaus hjá mér í morgun, ég er búinn að setja olíu á hann en hann geingur illa og drepur á sér og lekur af olíu úr hráolíusíu. Er loft inná kerfinu? Hverni losna ég við það
Re: vantar smá ráð
Posted: 24.sep 2013, 18:38
frá Haukur litli
Ertu búinn að opna afloftunina á síuhúsinu? Næst er þá að losa rærnar við spíssana og starta einn eða tvo hringi. Ég er nokkuð viss um að loftið sé þar.
Re: vantar smá ráð
Posted: 24.sep 2013, 18:59
frá hilux
Haukur litli wrote:Ertu búinn að opna afloftunina á síuhúsinu? Næst er þá að losa rærnar við spíssana og starta einn eða tvo hringi. Ég er nokkuð viss um að loftið sé þar.
já ég gerði það en hann er eins gengur smástund og drepur svo á sér og lekur af olíu einhverstaðar hjá hráolíusíunni sé ekki hvar
Re: vantar smá ráð
Posted: 24.sep 2013, 19:03
frá sukkaturbo
Sæll er hand dæla ofan á síuhúsinu??
Re: vantar smá ráð
Posted: 24.sep 2013, 19:13
frá hilux
sukkaturbo wrote:Sæll er hand dæla ofan á síuhúsinu??
já
Re: vantar smá ráð
Posted: 24.sep 2013, 19:39
frá sukkaturbo
Sæll settu nýja síu og losaðu upp á fremsta spýssarörinu og dældu með handdælunni þar til olían er kominn fram að spýssanum og engar loftbólur sjást. Byrjaðu á þessu. Skoðaðu líka hvort komi olía upp með öxlinum á handdælunni. kveðja guðni
Re: vantar smá ráð
Posted: 24.sep 2013, 19:41
frá hilux
sukkaturbo wrote:Sæll settu nýja síu og losaðu upp á fremsta spýssarörinu og dældu með handdælunni þar til olían er kominn fram að spýssanum og engar loftbólur sjást. Byrjaðu á þessu. Skoðaðu líka hvort komi olía upp með öxlinum á handdælunni. kveðja guðni
Kemur ekki olía upp með öxlinum en prófa hitt takk kærlega
Re: vantar smá ráð
Posted: 25.sep 2013, 10:52
frá hilux
það var lítið nálargat á hráolíusíu nú er bara ná í nýja síu og í gang með drusluna. Takk fyrir ráðin